Tróð eigin skít upp í eiginmann sinn – Kenndi þunglyndi eftir dauða foreldra sinna um
Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 5. nóvember 2026 21:00
Maðurinn lýsti alvarlegu ofbeldi konunnar. Mynd/Getty
Bresk kona á sjötugsaldri hefur verið dæmd fyrir að troða eigin skít upp í munn eiginmanns síns. Konan hefur ítrekað beitt hann líkamlegu og andlegu ofbeldi.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Alison Moore, 63 ára gömul kona frá Damerham nærri Southampton við suðurströnd Englands, hefur verið dæmd fyrir heimilisofbeldi gagnvart eiginmanni sínum og á hana sett nálgunarbann. Tróð hún meðal annars eigin skít upp í munn hans og hleypti honum ekki að vaski til að þrífa sig.
Í réttarhöldunum kom fram að Alison hafi ítrekað ráðist á eiginmann sinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, og beitt hann ofbeldi. Alvarlegasta árásin átti sér stað á heimili þeirra þann 20. ágúst síðastliðinn.
Þá tók Alison manninn taki og hélt honum föstum í rúminu. Sagði hún að hann „talaði svo mikinn skít“ að hún ætlaði að láta hann éta skít. Makaði hún svo eigin saur í andlit hans og munn.
Reyndi hann að komast í burtu til að þrífa sig en hún hélt honum föstum. Loks náði maðurinn að komast undan Alison, fór inn á klósett og þreif sig. En áður en hann gerði það tók hann ljósmynd af sér til þess að geta sýnt lögreglu og dómara.
Hann hringdi svo á lögreglu sem kom og handtók Alison. Hún svaraði engu í yfirheyrslu en skrifaði svo yfirlýsingu þar sem hún neitaði öllum sakargiftum.
Sátu að sumbli
Eiginmaðurinn sagði hins vegar allt aðra sögu. Það er að Alison hafi margsinnis beitt hann ofbeldi að undanförnu. Meðal annars slegið hann í andlitið með flötum lófa með hring og að hún hafi slegið hann í bakið með kústskafti. Gat hann sýnt fram á áverka sem hann hafði hlotið eftir árásirnar. Meðal annars skurð við annað augað.
Fyrir hinn örlagaríka dag þann 20. ágúst hafði andinn í hjónabandinu verið slæmur og drykkja talsverð. Fyrr um kvöldið höfðu hjónin setið allt of lengi að sumbli á bar. Þegar þau ætluðu að færa sig yfir á annan var Alison ekki hleypt inn vegna ástands hennar. Sakaði hún eiginmann sinn um að hafa ekki stutt við hana þegar henni var meinaður aðgangur að barnum. Þegar þau komu heim lét hún til skarar skríða gegn honum.
Kenndi foreldramissi um
Fyrir rétti skilaði eiginmaðurinn inn skýrslu um áhrif árásanna á sig en bað um að hún yrði ekki lesin upphátt. Þá sagðist hann ekki vilja að sett yrði nálgunarbann á Alison. Alison sagðist hafa átt bágt að undanförnu, meðal annars vegna dauða foreldra sinna og þunglyndi. Hún myndi sjá eftir þessu. Dómarinn taldi það ekki afsökun í málinu. Árásin hafi verið skipulögð og tilhæfulaus.
„Notkun úrgangs fól í sér tilefnislausa niðurlægingu á fórnarlambinu. Þú hefur augljóslega átt erfitt uppdráttar undanfarin ár, meðal annars vegna andláts foreldra þinna og annarra persónulegra aðstæðna en ekkert af þessu réttlætir þessa hegðun,“ sagði dómarinn Gary Lucie. „Ég sé daglega fólk sem misnotar áfengi, og það er rótin að brotum þess. Þú virðist ekki enn hafa viðurkennt að það eigi einnig við um þig.“
Hjónin yfirgáfu réttarsalinn saman eftir dómsuppkvaðningu, en nálgunarbann var sett á Alison og hún sakfelld fyrir heimilisofbeldi. Refsingin verður ákveðin síðar.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗