Ítrekuð mistök kerfisins: „Maður verður reiður“

Júlíana Rut Bergmann.

Júlíana Rut Bergmann. Ljósmynd/Aðsend

Hjónin Björg Jóhannsdóttir og Orri Bergmann Valtýsson misstu eldri dóttur sína, Júlíönu Rut, þegar hún var aðeins nokkurra klukkustunda gömul. Tæp þrjú ár eru liðin en þau fá enn boð og áminningar tengdar dóttur sinni. Nú síðast frá Sjúkratryggingum Íslands, með áminningu um að panta fyrir hana tíma hjá tannlækni.

„Maður verður reiður. Manni bregður náttúrulega bara svo mikið. Þetta er ekki eitthvað sem þú ert að búast við,“ segir Björg við mbl.is. Fjölskyldan sé sem betur fer komin í gegnum erfiðasta hjallann og farin að ná að byggja sig upp aftur.

„Þetta var náttúrulega miklu erfiðara fyrsta árið þegar maður fékk þetta, þótt þetta sé auðvitað alltaf erfitt og sérstaklega einmitt þegar maður er ekki að búast við þessu. Maður er vonsvikinn út í kerfið með að þetta sé að gerast.“

Boðið á krílamorgna ári eftir missinn

Tveimur mánuðum eftir að Júlíana litla féll frá fengu foreldrar hennar pakka frá Hafnarfjarðarbæ sem fylgdu hamingjuóskir með nýfædda barnið. Í pakkanum voru föt og fleiri nauðsynjavörur fyrir nýbakaða foreldra.

„Mamma mín og vinafólk okkar hringdi í Hafnarfjarðarbæ og þá sögðu þeir allavega að þeir ætluðu að breyta einhverju hjá sér og senda ekki pakkann út jafn snemma en ég veit svo ekkert meira með það,“ segir Björg.

Þá fengu þau hjónin tölvupóst frá Hafnarfjarðarkirkju þar sem þeim var boðið á krílamorgna í kirkjunni í fæðingarorlofinu. Þá var tæpt ár liðið síðan þau misstu dóttur sína.

„Það er búið að hafa samband við þessar stofnanir og við höfum ekkert fengið aftur frá þeim en við erum alltaf með hana inni á Abler þannig að ef við erum að kaupa til dæmis sundnámskeið fyrir hina stelpuna okkar þurfum við alltaf að velja hvort barnið við viljum kaupa fyrir,“ segir Björg og vísar þar í hugbúnaðarfyrirtækið Abler, sem hefur það að markmiði að einfalda og efla íþrótta- og tómstundastarf.

Hjónin með yngri dóttur sinni, hinni rúmlega eins árs gömlu Natalíu Líf. Ljósmynd/Aðsend

Hafa ítrekað haft samband við Abler

Spurð hvort þau hafi haft samband við Abler segir Björg manninn sinn hafa gert það ítrekað.

„Þeir taka hana út í svona mánuð og svo kemur hún aftur inn,“ segir hún. „Þeir segja alltaf að þetta gerist ekkert aftur en síðan kemur þetta alltaf aftur.“

Í svari frá Abler hafi komið fram að erindi hjónanna hefði verið sent til tæknideildar fyrirtækisins sem sæi um tengingu Abler við Þjóðskrá.

„Mér finnst samt bara skrýtið, eins og með Abler, að börnin komi bara sjálfkrafa inn. Af hverju koma þau ekki bara inn þegar þú hefur keypt námskeið fyrir þau? Af hverju birtast þau bara strax inni?“ spyr Björg.

„Þeir eiga ekkert að þurfa að tengja fólk í gegnum Þjóðskrá. Fólk á bara að birtast þarna inni þegar það hefur fjárfest eitthvað í gegnum þá.“

mbl.is leitaði upplýsinga hjá forsvarsmanni Abler en hann bað um frest til að svara fyrirspurninni.

Minnt á að panta tíma hjá tannlækni

Björg og Orri fengu sem fyrr segir bréf frá Sjúkratryggingum Íslands á þriðjudaginn, tveimur árum og átta mánuðum eftir að dóttir þeirra lést. Í bréfinu voru þau minnt á að panta tíma fyrir tveggja ára dóttur sína hjá tannlækni.

„Svo hafa þeir örugglega fengið ábendingu um þetta af því að þeir sendu eitthvert bréf daginn eftir með afsökunarbeiðni fyrir að hafa sent þennan póst,“ segir Björg, en hún vildi deila reynslu fjölskyldunnar í von um að koma í veg fyrir að aðrir foreldrar lendi í svipuðum aðstæðum.

„Tíminn hefur liðið hjá okkur en það gætu verið aðrir sem eru að fá svona á mun viðkvæmari tímum. Maður man hvað þetta var sárt þannig að maður vill gera það sem maður getur til þess að þetta verði lagað, aðallega fyrir aðra sem lenda í sömu aðstöðu.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅