„Chelsea braut verr af sér en City“
Simon Jordan, fyrrverandi eigandi Crystal Palace, heldur því fram að Chelsea hafi brotið verr af sér en Manchester City hvað varðar fjárhagslegt misferli í enskri knattspyrnu.
„Af hverju er engin raunveruleg reiði í garð Chelsea? Chelsea fékk að gera það sem Man City fékk aldrei að gera, og samt, sex árum eftir að þeim var hleypt inn í herbergið, svindluðu þeir enn,“ sagði hann í þættinum Sports Uncensored hjá Piers Morgan.
Jordan hélt því fram að Chelsea hefði getað eytt að vild áður en fjárhagslegar takmarkanir gerðu City erfiðara fyrir að veita rótgrónu félögunum samkeppni.
„Þannig að Chelsea hefur í raun brotið meira og verr af sér en Man City,“ sagði hann. „Farið líka að beina einhverri reiði að Chelsea.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗