Tilkynnt um misheppnað innbrot

Þjófunum tókst ekki að ljúka verkinu og voru farnir þegar húsráðandi kom heim. Ljósmynd/Colourbox

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í dag vegna innbrots í umdæmi lögreglustöðvar 4, sem annast Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ.

Innbrotsþjófarnir voru búnir að stafla upp munum til að hafa á brott með sér. Þeim tókst þó ekki að ljúka verkinu og voru farnir þegar húsráðandi kom heim.

Í annarlegu ástandi á hóteli

Í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem annast miðbæ, Vesturbæ, Austurbæ og Seltjarnarnes, var lögregla kölluð til vegna manns í annarlegu ástandi á hóteli sem hafði verið að öskra á fólk utan við það.

Maðurinn hafði þá farið inn í anddyri hótelsins og slegið í tölvuskjá og borðsíma án þess þó að skemma munina.

Var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem meint fíkniefni fundust í fórum hans.

Tilkynnt var um innbrot í iðnaðarhverfi í umdæmi lögreglustöðvar 2, sem annast Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, þar sem menn höfðu stolið m.a. verkfærum og reynt að gera eftirlitsmyndavélar óvirkar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅