Landsréttur mildaði dóm fyrir heimilisofbeldi
Landsréttur dæmdi karlmann í 18 mánaða fangelsi í dag fyrir stórfellt brot í nánu sambandi gegn þáverandi eiginkonu sinni og tveimur dætrum þeirra.
Maðurinn var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi af héraðsdómi Reykjaness í maí í fyrra. Refsingin hefur því verið milduð.
Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa um árabil beitt eiginkonu sína líkamlegu og andlegu ofbeldi og hótunum.
Dæturnar urðu ítrekað vitni að ofbeldinu og var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa ógnað andlegri heilsu þeirra og velferð.
Hótaði að drepa hana og flá lifandi
Samkvæmt dómi Landsréttar áttu brotin sér stað frá október 2018 til loka nóvember 2024.
Maðurinn sló hana meðal annars í andlitið, sparkaði í maga hennar, tók hana hálstaki og ýtti henni upp við vegg. Þá sló hann hana í höfuðið á meðan hún hélt á yngri dóttur þeirra.
Hann hótaði henni jafnframt lífláti og barsmíðum, ógnaði henni með hníf og kallaði hana ítrekað illum nöfnum. Hann hótaði meðal annars að drepa hana og flá hana lifandi.
Konan lýsti því að maðurinn hefði sagt henni að henni yrði vísað úr landi ef hún skildi við hann eða leitaði til lögreglu. Henni hefði liðið eins og hún væri föst.
Þegar hann reiddist hefði hún farið með dæturnar inn á baðherbergi og læst að þeim, og þá oft heyrt hann róta í skúffu þar sem eldhúshnífar voru geymdir.
Segir að um orðatiltæki hafi verið að ræða
Rannsókn málsins hófst í apríl 2024 þegar konan sótti um skilnað og leitaði til lögreglu af ótta við viðbrögð mannsins. Hún dvaldi í kjölfarið í tvo mánuði í Kvennaathvarfinu ásamt dætrunum.
Maðurinn neitaði sök. Hann sagðist aldrei hafa beitt konuna ofbeldi og að ýmis orðatiltæki hljómuðu eins og hótanir en væru það í raun ekki.
Áverka á myndum af konunni sagði hann stafa af slysum, svo sem snjóbolta, eða að hún hefði veitt sér þá sjálf.
Hann taldi ásakanirnar sprottnar af því að hann hefði viljað skilja við hana. Um hljóðupptöku þar sem heyra mátti högghljóð sagðist hann fyrir dómi hafa slegið í ofn en hjá lögreglu hafði hann sagst hafa slegið í eldhúsbekk.
Héraðsdómur taldi framburð konunnar stöðugan, einlægan, ýkjulausan og sannfærandi. Hann fengi ótvíræða stoð í hljóðupptökum og skilaboðum úr síma hennar og ljósmyndum af áverkum.
Framburður mannsins þótti ótrúverðugur.
Miskabætur til konunnar lækkaðar
Eldri dóttirin greindi frá því í skýrslutöku í Barnahúsi að faðir hennar hefði öskrað á þær systur, togað í hár þeirra og hendur og sparkað í rassinn á þeim.
Héraðsdómur taldi ekki hægt að leggja framburð hennar einan til grundvallar að þessu leyti enda væri hún mjög ung og frásögnin fengi ekki stoð í öðrum gögnum.
Maðurinn var því sýknaður af líkamlegu ofbeldi gegn dætrunum og unir ákæruvaldið þeirri niðurstöðu.
Hann var hins vegar sakfelldur fyrir andlegt ofbeldi gegn þeim, meðal annars með því að beita móður þeirra ofbeldi í þeirra viðurvist.
Miskabætur til konunnar voru lækkaðar úr 3,5 milljónum króna í 2,5 milljónir. Bætur til dætranna standa óbreyttar, 1,5 milljónir til þeirrar eldri og ein milljón til þeirrar yngri.
Maðurinn greiðir helming áfrýjunarkostnaðar en afgangurinn greiðist úr ríkissjóði.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗