Rafa Benítez vill snúa aftur
Spænski knattspyrnustjórinn Rafael Benítez vill snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.
Benítez, sem er 66 ára gamall, greindi frá þessu í samtali við enska miðilinn Talksport en hann þekkir vel til á Englandi eftir að hafa stýrt liðum á borð við Liverpool, Chelsea, Newcastle og Everton.
Benítez er sem stendur án starfs eftir að honum var sagt upp hjá Panathinaikos í Grikklandi í maí á þessu ári en Sverrir Ingi Ingason er leikmaður gríska liðsins.
Mikill munur á leikjunum
„Ég horfði á leik Juventus og Napoli og svo á leik Liverpool og Arsenal um daginn,“ sagði Benítez í samtali við Talksport.
„Það var mikill munur á leikjunum tveimur. Það er gríðarleg ákefð í ensku úrvalsdeildinni og það heillar mig mest. Allir leikir eru erfiðir og það er barist um boltann í hverjum einasta leik. Ég elska enska boltann.
Ég þarf hins vegar að finna rétta verkefnið og að þjálfa í ensku úrvalsdeildinni er alltaf markmiðið,“ bætti Benítez við.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗