Frá Liverpool til Leeds?
Enski knattspyrnumaðurinn Harvey Elliott gæti gengið til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Leeds þegar janúarglugginn verður opnaður.
Það er vefmiðillinn Football Insider sem greinir frá þessu en Elliott, sem er 23 ára gamall, er samningsbundinn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.
Hann er sem stendur á láni hjá Valencia á Spáni en hefur aðeins komið við sögu í sex leikjum með liðinu á tímabilinu og hefur hann komið inn á sem varamaður í öllum þeirra.
Sóknarmaðurinn mun að öllum líkindum yfirgefa Valencia strax í janúar og þá gæti Leeds reynt að kaupa hann en hann kostar í kringum 15 milljónir punda.
Hann er samningsbundinn Liverpool til sumarsins 2027 en alls á hann að baki 149 leiki fyrir félagið þar sem hann hefur skorað 15 mörk og lagt upp 21.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗