Norskur landsliðsmaður orðaður við Arsenal

Antonio Nusa.

Antonio Nusa. AFP/Ronny Hartmann

Forráðamenn Englandsmeistara Arsenal hafa mikinn áhuga á norska knattspyrnumanninum Antonio Nusa.

Það er vefmiðillinn Caught Offside sem greinir frá þessu en Nusa, sem er 21 árs gamall, er samningsbundinn RB Leipzig í þýsku 1. deildinni.

Vefmiðillinn greinir frá því að forráðamenn þýska félagsins vilji fá í kringum 60 milljónir punda fyrir sóknarmanninn en forráðamenn Arsenal vonast til þess að kaupa hann á 45 milljónir punda.

Nusa, sem er 21 árs gamall, gekk til liðs við RB Leipzig sumarið 2024 frá Club Brugge í Belgíu en hann hefur skorað 16 mörk og lagt upp önnur 18 í 85 leikjum fyrir þýska félagið.

Þá á hann að baki 34 A-landsleiki fyrir Noreg þar sem hann hefur skorað 9 mörk en hann skoraði eitt mark í sex leikjum á HM í Norður-Ameríku í sumar.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅