Í viðræðum um nýjan samning
Spænski knattspyrnustjórinn Unai Emery er í viðræðum við forráðamenn Aston Villa um nýjan samning.
Það er enski miðillinn The Telegraph sem greinir frá þessu en Emery, sem er 55 ára gamall, tók við þjálfun liðsins í október árið 2022 af Steven Gerrard.
Núgildandi samningur Emerys gildir til sumarsins 2029 en forráðamenn Aston Villa vonast til þess að stjórinn skrifi undir langtíma samning á næstu dögum.
Spánverjinn hefur meðal annars verið orðaður við stjórastöðuna hjá Manchester United að undanförnu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗