Spænskur varnarmaður á óskalista United
Spænski knattspyrnumaðurinn Jacobo Ramon er á óskalista enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United.
Það er vefmiðillinn Teamtalk sem greinir frá þessu en Ramon, sem er 21 árs gamall, er samningsbundinn Como í ítölsku A-deildinni.
Ramon gekk til liðs við Como frá Real Madrid sumarið 2025 en miðvörðurinn hefur leikið 51 leik fyrir Como þar sem hann hefur skorað fimm mörk.
Hann hefur skorað tvö mörk í tíu leikjum í ítölsku A-deildinni á tímabilinu og þá hefur hann einnig skorað eitt mark í Meistaradeildinni á leiktíðinni.
Varnarmaðurinn er samningsbundinn Como til sumarsins 2030 en hann kostar í kringum 50 milljónir punda.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗