Skrautlegar matarvenjur vekja athygli á Englandi

Jayden Bogle.

Jayden Bogle. AFP/Paul Ellis

Enski knattspyrnumaðurinn Jayden Bogle fór mikinn í hlaðvarpi enska úrvalsdeildarfélagsins Leeds á dögunum.

Bogle, sem er 26 ára gamall, er samningsbundinn Leeds og hefur leikið níu leiki í úrvalsdeildinni á tímabilinu og skoraði í þeim eitt mark.

Miðvörðurinn greindi frá því að hann borðaði alltaf amerískar pönnukökur með sírópi fyrir leiki liðsins.

Matarvenjur leikmannsins hafa vakið mikla athygli á Englandi en hann gekk til liðs við Leeds frá Sheffield United sumarið 2024.

Leeds hefur farið ágætlega af stað á tímabilinu og er sem stendur í 12. sæti deildarinnar með 11 stig en liðið er án sigurs í síðustu fimm leikjum sínum.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅