Forráðamenn United horfa til Sádi-Arabíu
Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United hafa áhuga á enska framherjanum Ivan Toney.
Það er vefmiðillinn Football Insider sem greinir frá þessu en Toney, sem er þrítugur, er samningsbundinn Al Ahli í Sádi-Arabíu.
Football Insider greinir frá því að forráðamenn United hafi áhuga á því að fá Toney að láni þegar janúarglugginn verður opnaður.
United er í framherjaleit en Benjamin Sesko, framherji liðsins, er að glíma við meiðsli á sköflungi og verður í fyrsta lagi tilbúinn í slaginn seinni partinn í janúar.
Toney hefur byrjað tímabilið afar vel í Sádi-Arabíu en hann hefur skorað 13 mörk í fyrstu níu deildarleikjum sínum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗