Fleiri kærur á leið til City?

Manchester City gæti átt yfir höfði sér fleiri kærur.

Manchester City gæti átt yfir höfði sér fleiri kærur. AFP/Darren Staples

Manchester City gæti átt yfir höfði sér frekari kærur vegna fjármála þar sem sífellt fleiri stjórnendur í enska fótboltanum þrýsta á að styrktarsamningar félagsins frá árinu 2018 verði skoðaðir, samkvæmt The Independent.

City var í síðasta mánuði fundið sekt um 114 brot sem tengjast áratugnum á undan en félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni.

Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að styrktartekjur hefðu verið ýktar með dulbúnum fjárfestingum frá eigendunum.

Stjórnendur margra annarra félaga efast um að þeim starfsháttum hafi verið hætt árið 2018, þótt engin ný rannsókn eða kærur hafi verið tilkynntar.

Aðrir vilja frekar bíða eftir niðurstöðu áfrýjunarinnar og refsiaðgerðum af ótta við annað langdregið mál. City heldur áfram að halda fram sakleysi sínu.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅