Grealish enn og aftur fjarverandi

Jack Grealish

Jack Grealish AFP/Peter Powell

Jack Grealish missir af fjórða leik Everton í röð þegar liðið mætir Coventry City í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á morgun, en David Moyes knattspyrnustjóri Everton segir að stutt sé í endurkomu hans.

„Hann er ekki leikfær. Ég ætla ekki að upplýsa ykkur um áætlunina, en við munum brátt vinna aftur með Jack,“ sagði Moyes á blaðamannafundi í dag.

Enski landsliðsmaðurinn var settur úr hópnum vegna agabrots eftir að hann skrópaði á æfingu. Hann missti upphaflega af leiknum gegn Arsenal vegna veikinda.

Grealish, sem er 31 árs, er á öðru tímabili sínu að láni frá Manchester City.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅