Spá 758 milljón króna afgangi fyrir austan

Listaverkið á sementstönkunum á Reyðarfirði vekur athygli á Íslenska stríðsárasafninu.

Listaverkið á sementstönkunum á Reyðarfirði vekur athygli á Íslenska stríðsárasafninu. Ljósmynd/Fjarðabyggð

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar gerir ráð fyrir 758 milljóna króna rekstrarafgangi og rúmlega milljarðs króna fjárfestingum árið 2027.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tillögu að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árin 2027–2030.

Reksturinn er áætlaður skila nægu fé til að standa undir fjárfestingum ársins og greiða niður lán.

Þá er lagt til að álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækki úr 0,40% í 0,39% og útsvar verði óbreytt.

Fjárfest í skólum og íþróttamannvirkjum

Áætlaðar rekstrartekjur sveitarfélagsins og fyrirtækja þess nema 12,9 milljörðum króna árið 2027 og gert er ráð fyrir að handbært fé frá rekstri verði 1,67 milljarðar króna og að greiddar verði 540 milljónir króna af langtímalánum og leiguskuldbindingum.

Meðal verkefna fyrir árið 2027 er endurnýjun þakklæðningar á grunnskólanum á Fáskrúðsfirði og klæðningar og glugga á grunnskólanum á Stöðvarfirði.

Einnig er gert ráð fyrir áframhaldandi undirbúningi að nýju íþróttahúsi á Eskifirði og uppbyggingu við Íslenska stríðsárasafnið á Reyðarfirði.

Fræðslu- og uppeldismál stærsti málaflokkurinn

Á fjögurra ára tímabilinu eru fjárfestingar áætlaðar tæplega 3,4 milljarðar króna. Ekki er gert ráð fyrir nýjum langtímalánum öðrum en lánum frá Ofanflóðasjóði vegna öryggisframkvæmda, segir í tilkynningu Fjarðabyggðar.

Fræðslu- og uppeldismál eru stærsti málaflokkur sveitarfélagsins en áætluð útgjöld til hans nema 4,5 milljörðum króna árið 2027.

Til æskulýðs- og íþróttamála er áætlað að verja 1,45 milljörðum króna og til félagsþjónustu rúmum milljarði.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅