Krefur ráðherra svara um meðferðir á klumbufót

Klumbufætur er fæðingargalli sem hefur áhrif á lögun og stöðu fóta og ökkla, annaðhvort á öðrum fæti eða báðum. Viðeigandi meðferð skiptir öllu máli. Ljósmynd/Aðsend

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokks, hefur lagt fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um val á meðferðarstöðum erlendis, meðal annars vegna barna með klumbufót.

Spyr hún meðal annars út í af hverju það standi til að allar aðgerðir sem eru niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands fari fram í Svíþjóð en ekki í Bandaríkjunum þar sem einhverjir færustu sérfræðingar á sviði klumbufóta starfa.

Fjallað hefur verið um stöðu barna sem fæðast með klumbufætur hér á landi á mbl.is og í Morgunblaðinu undanfarið en að sögn nokkurra mæðra sem eiga börn með slíkan fæðingargalla er hún ekki nógu góð.

Eini sérfræðingurinn sem sinnt hefur meðferð barnanna er á leið í leyfi og ekki liggur enn fyrir hvernig meðferð verður háttað. Að öllum líkindum verða börnin send til útlanda til meðferðar.

Sænskir foreldrar líka áhyggjufullir

Samkvæmt upplýsingum mbl.is frá Landspítalanum er nú unnið að því að gera þjónustusamning við eitt af systursjúkrahúsum Landspítalans á Norðurlöndum, hugsanlega Karolinska- eða Sahlgrenska-sjúkrahúsið, en mæðurnar telja það ekki endilega bestu kostina. Þær vita ekki til þess að neitt íslenskt barn hafi fengið meðferð við klumbufótum í Svíþjóð.

Mæðurnar fjórar sem rætt var við fóru allar með drengina sína í meðferð hjá sama lækninum í Bandaríkjunum, sem þær segja einn þann færasta í heimi. Dæmi eru um að foreldrar þurfi sjálfir að greiða fyrir meðferð í útlöndum, jafnvel á annan tug milljóna.

Þær eru ekki sáttar við að beina eigi öllum börnum í meðferð á Norðurlöndunum, líkt og til stendur, og segja að einn helsti sérfræðingur í klumbufótum á Karolinska-sjúkrahúsinu hafi einnig látið af störfum. Foreldrar sænskra barna hafi því miklar áhyggjur.

Ýmsar spurningar 

Í fyrirspurn Nönnu Margrétar til heilbrigðisráðherra um málið er meðal annars spurt hvaða viðmið Sjúkratryggingar Íslands noti við val á meðferðarstað erlendis og hvert vægi sérþekkingar, reynslu og árangurs meðferðaraðila sé annars vegar og kostnaðar gildandi samninga og staðsetningar innan EES hins vegar.

Þá er til að mynda spurt hvort haft hafi verið samráð við Landspítala og landlækni um val á meðferðarstað fyrir börn með klumbufót og hvort Sjúkratryggingar hafi hætt að samþykkja greiðsluþátttöku vegna meðferðar barna með klumbufót í Bandaríkjunum.

Ráðherra er loks spurður hvort hann hyggist endurskoða reglugerðir til að tryggja að val á meðferðarstað ráðist fyrst og fremst af gæðum og árangri meðferðar í þágu barnsins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅