Efast um nauðsyn nýrrar ríkisstofnunar
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um stafræna heilsu. Samkvæmt því verður stafræn heilsa, sem nú er skrifstofa innan heilbrigðisráðuneytisins, sjálfstæð ríkisstofnun frá 1. janúar 2029. Kostnaður við nýju stofnunina liggur ekki fyrir.
Stafræn heilsa tók til starfa í byrjun árs og hefur tekið við verkefnum frá embætti landlæknis og Landspítala.
Í svari við fyrirspurn Árna Helgasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sagði ráðherra að þar starfi nú rúmlega 60 manns og að fjárheimildir upp á 1,06 milljarða króna hafi flust með verkefnunum.
Hún sagði að fleiri verkefni ættu eftir að bætast við. Ráðherra lagði áherslu á að starfsfólki hefði ekki fjölgað heldur hefði það verið flutt frá öðrum stofnunum.
Gengur gegn stefnu stjórnarinnar
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins sagði frumvarpið ganga gegn stefnu ríkisstjórnarinnar.
Hún benti á að sameining stofnana væri forgangsverkefni í stjórnarsáttmálanum og að hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar hefði lagt áherslu á fækkun þeirra.
„Og því spyr ég: Hvaða stofnun verður lögð niður á móti? Ekki er það Landspítalinn, ekki er það embætti landlæknis og ekki heilsugæslan en samt á að færa verkefnin frá þessum aðilum en frumvarpið leggur enga þeirra niður. Ný stofnun bætist við,“ sagði Guðrún á þinginu.
Meira ríkisbákn
Rósa Guðbjartsdóttir, flokkssystir Guðrúnar hjá Sjálfstæðisflokknum, tók í sama streng.
„Manni finnst eitthvað öfugsnúið við það að til að mæta tækninni, þetta snýst nú um tæknina, þurfi nýja ríkisstofnun, sem sagt meira ríkisbákn,“ sagði Rósa.
„Var engin önnur leið að mati hæstvirts ráðherra en að stofna nýja stofnun um þetta?“
Í ræðu sinni sagði Guðrún að í frumvarpinu fælist raunverulegur hagsmunaárekstur. Stofnunin eigi bæði að geta þróað lausnir sjálf og metið hvort lausnir fyrirtækja fái að tengjast innviðum heilbrigðiskerfisins.
„Fyrirtæki getur þannig staðið frammi fyrir því að þurfa samþykki aðila sem sjálfur getur þróað sambærilega lausn. Þetta er raunverulegur hagsmunaárekstur í fyrirkomulaginu, óháð því hver situr í forstjórastólnum eða gegnir embætti ráðherra,“ sagði hún.
Kaupa ekki tilbúnar lausnir
Guðrún gagnrýndi einnig heimild ráðherra til að skylda heilbrigðisstofnanir og sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk til að nota tiltekin kerfi með reglugerð og spurði hvaða tryggingar kæmu í veg fyrir að aðrar hæfar lausnir yrðu útilokaðar.
Loks sagði hún að rammasamningur stafrænnar heilsu tæki ekki til kaupa á tilbúnum lausnum, svo frumkvöðlar gætu boðið fram starfsfólk en ekki selt eigin vöru.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗