Rotaði vændiskonu eftir orðaskak
Landsréttur dæmdi í dag karlmann í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vændiskaup og líkamsárás á gistiheimili í Reykjavík í maí 2023.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt hann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og var refsingin því tvöfölduð.
Manninum var jafnframt gert að greiða allan sakarkostnað í héraði og fyrir Landsrétti, rúmlega 2,4 milljónir króna.
Bar fyrir sig neyðarvörn
Maðurinn gekkst við því að hafa slegið konu ítrekað í andlitið eftir að hafa greitt henni fyrir vændi.
Fór hann fram á sýknu af líkamsárásinni á grundvelli neyðarvarnar. Landsréttur hafnaði því.
Atvikið átti sér stað sunnudaginn 7. maí 2023. Maðurinn hafði greitt konunni 30.000 krónur fyrir vændi og í kjölfarið slegið hana ítrekað með krepptum hnefa í andlitið.
Konan hlaut opið sár og mar á hægra augnsvæði, yfirborðsáverka á vör, í munnholi og á höfði og mar á vinstri upphandlegg. Í dómi Landsréttar segir að höggin hafi verið svo þung að hún missti meðvitund.
Spurði hvort hún væri karlmaður
Lögreglu barst tilkynning síðdegis sama dag um konu sem væri klæðalítil og í miklu uppnámi fyrir utan gistiheimili í austurborginni. Hún var með sýnilega áverka og úlpa hennar rifin.
Maðurinn játaði vændiskaupin fyrir héraðsdómi og unir sakfellingu fyrir þau. Hann viðurkenndi einnig að hafa slegið konuna þrisvar eða fjórum sinnum í andlitið.
Að sögn mannsins kom til orðaskipta eftir að hann spurði konuna hvort hún væri karlmaður og krafðist endurgreiðslu.
Ekki talið að hnífi hafi verið beitt
Hann sagði hana þá hafa sótt málmhlut í eldhússkúffu, sem hann taldi vera hníf, og slegið hann í andlitið.
Hann kvaðst hafa óttast um líf sitt og ekki þorað að snúa baki í konuna til að komast út. Því hefði hann kýlt hana þar til hún rotaðist og síðan yfirgefið herbergið.
Landsréttur tók undir með héraðsdómi að frásögn mannsins af málmhlutnum væri ekki svo skýr að byggja mætti á að um hníf hefði verið að ræða. Enginn hnífur fannst á vettvangi, en lögreglumenn sem þangað komu báru að ekki hefði verið leitað sérstaklega að hníf.
Þá var bent á að maðurinn hefði fyrst fyrir héraðsdómi sagt sár á hendi sér líklega vera eftir hníf. Læknir sem skoðaði hann bar að ólíklegt væri að hnífsegg hefði valdið sárinu.
Ekki náðst í konuna
Að mati Landsréttar hafði maðurinn ráðrúm til að yfirgefa herbergið eftir að konan veittist að honum án þess að slá hana endurteknum hnefahöggum. Skilyrði neyðarvarnar voru því ekki talin uppfyllt.
Konan, sem er erlendur ríkisborgari, kom hvorki fyrir héraðsdóm né Landsrétt til að gefa skýrslu. Hún er talin stödd erlendis en ekki hefur tekist að hafa uppi á henni þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/62/84/1628462.jpg)