Segir Þorgerði ekki vilja styðja framgöngu Daða
Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði sömu spurningarinnar fjórum sinnum í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. mbl.is/Karítas
Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir það áberandi að lítill stuðningur sé frá þingmönnum og formanni Viðreisnar við framgöngu Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra.
Styr hefur staðið um stjórn Landsvirkjunar frá því að Hörður Arnarson hætti sem forstjóri fyrirtækisins. Stjórnin hafði fundað ítrekað án Harðar og lýsti Hörður yfir áhyggjum af því að fyrirtækið yrði óstarfhæft sökum pólitískra afskipta.
Þá hafa stjórnarandstöðuþingmenn sakað Daða um að gera lítið úr ágreiningi Harðar og stjórnar Landsvirkjunar í óundirbúnum fyrirspurnatíma þann 19. október.
Sama spurningin fjórum sinnum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsti loks yfir stuðningi við Daða Má Kristófersson sem fjármála- og efnahagsráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag, þegar Guðlaugur hafði ítrekað spurt hvort hún styddi framgöngu ráðherrans í málinu.
Í fyrri ræðu sinni spurði Guðlaugur Þorgerði að því einu sinni og kom hún sér undan því að svara spurningunni. Þó áréttaði hún að Daði hefði brugðist hratt við og boðað til sérstakrar umræðu á Alþingi í gær um mál þetta. Þar hefði hann gefið skýr svör.
Þá bætti hún við að það væri ekkert sem gæfi tilefni til að ætla að lög hefðu verið brotin og að Daði hefði hvatt stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis til að fara yfir málið.
Guðlaugur fór því aftur upp í pontu og endurtók sömu spurningu um stuðning Þorgerðar við Daða í þrígang.
„Já, að sjálfsögðu styð ég Daða Má Kristófersson sem fjármálaráðherra. Hann hefur staðið sig með eindæmum vel,“ segir Þorgerður.
Augljóst að hún sé að reyna að komast hjá því
„Það er augljóst að hún er að reyna að komast hjá því að segja að hún styðji framgöngu ráðherrans í málinu,“ segir Guðlaugur í samtali við mbl.is og vísar í að Þorgerður lýsir aðeins yfir stuðningi við Daða sem ráðherra en ekki við framgöngu hans í málinu.
„Hún hafði næg tækifæri til þess að segja að hún styðji framgöngu ráðherrans í þessu máli en hún kaus að gera það ekki,“ segir hann jafnframt.
Þá segir hann málið líta illa út og að öllum sé ljóst að Daði hafi ekki sagt þinginu rétt frá.
„Í öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við er það gríðarlega alvarlegt þegar ráðherra segir þingi ekki satt og rétt frá,“ segir Guðlaugur.
Þá bætir hann við að það liggi fyrir að nú séu meiri pólitísk afskipti af Landsvirkjun en hafa verið í áratugi.
„Þau segjast hafa verið að gera ráðstafanir til þess að það væri armslengd á milli ráðuneytisins og fyrirtækisins en þvert á móti settu þau fyrirtækið undir handarkrikann á ráðuneytinu.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗