Reiknar með verkfallsaðgerðum

NIðurstaða atkvæðagreiðslunnar liggur fyrir eftir tæpa viku.

NIðurstaða atkvæðagreiðslunnar liggur fyrir eftir tæpa viku. mbl.is/Árni Sæberg

Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, býst við því að félagsmenn samþykki að ráðast í verkfallsaðgerðir sem takmarkast við leiguflug Icelandair og Loftleiða fyrir þriðja aðila.

Þetta segir Jón Þór við mbl.is en félagsmenn FÍA samþykktu í gær að efna til atkvæðagreiðslu um fyrrnefndar verkfallsaðgerðir.

Aðgerðirnar myndu ekki ná til áætlunarflugs Icelandair og beinast fyrst og fremst að fyrirætlunum Icelandair á Möltu.

Atkvæðagreiðslan tekur viku að sögn Jóns og niðurstaða mun því ekki liggja fyrir fyrr en miðvikudaginn 11. nóvember.

Ekkert formlegt samtal

Jón segir ekkert formlegt samtal hafa átt sér stað milli Icelandair og FÍA síðan tilkynning um atkvæðagreiðsluna var gefin út í gær.

„En menn tala saman í síma,“ segir hann.

Hefurðu trú á því að þetta verði samþykkt í atkvæðagreiðslu?

„Já, ég býst við því,“ segir Jón.

Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA.

Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA. mbl.is/Eyþór

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅