Sprengjuhótun beindist að Keflavíkurflugvelli

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sprengjuhótun barst Isavia á Keflavíkurflugvelli í gegnum tölvupóst í morgun.

„Þetta er eitthvað sem gerist við og við hjá okkur og öðrum flugvöllum um allan heim. Þessi sprengjuhótun var svipuð og önnur hótun sem barst okkur í síðasta mánuði,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia.

Spurður segir hann hótunina í morgun hafa beinst að Keflavíkurflugvelli.

Ótrúverðugar hótanir

Guðjón segir að í báðum tilvikum hafi verið haft samband við lögregluna, samkvæmt verklagi, og hún hafi metið báðar hótanirnar, sem bárust báðar með tölvupósti, ótrúverðugar. Ekki var því gripið til neinna aðgerða.

Netöryggissveitin CERT-IS hefur verið látin vita af hótuninni sem barst í morgun.

Fólk á gangi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Guðjón segist ekki vita hvort hótunin tengist því sem gerðist í morgun þegar sprengjuhótanir bárust að minnsta kosti 12 flugfélögum í Evrópu.

Hótanir á enskum flugvöllum

Hótanir bárust Heathrow-flugvelli og Birmingham-flugvelli fyrr í dag, að sögn BBC. Heathrow greindi frá því í tilkynningu að hótunin sem barst flugvellinum hefði verið metin ótrúverðug og að engir farþegar væru í hættu.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅