Aðsend grein: Valfrelsi aldraðra
Aðsend grein úr Morgunblaðinu
Hve vel erum við undirbúin fyrir það að eldri borgurum fjölgi um 40% næstu tvo áratugina? Sú breyting á aldurssamsetningu þjóðarinnar mun hafa gríðarleg áhrif á heilbrigðis- og velferðarkerfið og einnig á húsnæðismarkaðinn. Bætt heilsa og hærri aldur er fagnaðarefni en því fylgja nýjar áskoranir. Á meðan eldra fólki fjölgar svo hratt fækkar í hópi þeirra sem eru á vinnualdri. Þetta þarf að hafa í huga þegar þjónustan er undirbúin fyrir komandi ár og fjármunum forgangsraðað.
Heilbrigðisyfirvöld eiga að beina spjótum sínum í mun meira mæli að heilsutengdum forvörnum sem miða að því að efla og styrkja einstaklingana fyrir efri árin. Sum sveitarfélög bjóða upp á heilsutengdar forvarnir fyrir íbúa sína sem er fjárfesting í heilsu og lífsgæðum fólks og mun spara fjármagn til lengri tíma.
Þörf á millistigsþjónustu
Í umönnun aldraðra á undanförnum árum hafa ríki og sveitarfélög lagt áherslu á að þróa heimaþjónustu fyrir eldri borgara og fjölga hjúkrunarrýmum. Hvort tveggja er nauðsynlegt. Á sama tíma hefur dvalarheimilum fækkað og eru slík rými til dæmis ekki lengur á höfuðborgarsvæðinu né á Suðurnesjum. En auk áherslunnar á hefðbundna heimaþjónustu í umönnun aldraðra, sem að mörgu leyti er takmörkuð, og uppbyggingar hjúkrunarheimila þarf að huga að og undirbúa svokallaða millistigsþjónustu líkt og veitt var á dvalarheimilunum.
Í skýrslu starfshóps heilbrigðisráðuneytis, sem skilaði tillögum sínum í fyrra, og í aðgerðaáætluninni „Gott að eldast“, sem samþykkt var á Alþingi árið 2023, kemur fram að millistig í þjónustu og umönnun við aldraða skorti. Lagt er til m.a. að efla heimaþjónustu, fjölga þjónustuíbúðum með sólarhringsþjónustu, skoða ný búsetuform fyrir eldra fólk og mögulegar breytingar á þjónustu og greiðslufyrirkomulagi.
Að fá að eldast með reisn
Aldraðir eiga að geta valið
hvaðan þjónustan kemur sem þeim er veitt og hvar þeir búa. Eðlilegast væri að fé fylgdi einstaklingnum. Við það að fjölga búsetuformum og auka þjónustuframboð er verið að koma til móts við mismunandi þarfir aldraðra, virða sjálfsákvörðunarrétt fólks á síðasta æviskeiðinu og tryggja að það fái
að eldast með reisn í öruggu og hvetjandi umhverfi. Því mun ég leggja fram þingsályktunartillögu
á næstu dögum um að við förum aftur að undirbúa millistigsþjónustu fyrir aldraða líkt og lagt er
til í aðgerðaáætluninni „Gott að eldast“. Ört stækkandi hópur aldraðra kallar á fjölbreyttari þjónustu og fleiri möguleika til búsetu en nú er. Horfumst í augu við það.
Rósa Guðbjartsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗