24 milljónir fyrir fyrstu skóflustungu
Gjöld Reykjavíkurborgar geta numið 24 milljónum króna vegna 60 fermetra íbúðar áður en fyrsta skóflustungan er tekin, að sögn Ara Edwald, oddvita Miðflokksins í borgarstjórn, en hann var gestur í Dagmálum.
Hann telur skipulagsstefnu og gjaldtöku borgarinnar ýta undir húsnæðisverð og hrekja fólk af almennum húsnæðismarkaði.
Ari nefnir byggingarréttar-, innviða- og gatnagerðargjöld sem geti, að vöxtum meðtöldum, farið yfir 400 þúsund krónur á hvern fermetra íbúðar. Miðað við þá fjárhæð nemi kostnaðurinn 24 milljónum fyrir 60 fermetra íbúð.
„Og hvernig er þá hægt að byggja ódýrt húsnæði?“ spyr hann.
Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur og stjórnarformaður Orkuveitunnar, er gestur Andrésar Magnússonar í Dagmálum. Þeir ræða m.a. fjárhag borgarinnar og fyrirhugaða hagræðingu, húsnæðis- og skipulagsmál, fjármögnun borgarlínunnar og samstarfið í borgarstjórn. Þá er rætt um framtíð Ljósleiðarans og Carbfix.
Segir barnafjölskyldur leita annað
Ari telur áhrifin birtast bæði í flutningi fólks til annarra sveitarfélaga og aukinni eftirspurn eftir félagslegu húsnæði. Hann nefnir Reykjanesbæ, Ölfus og Akranes sem byggðarlög sem barnafjölskyldur leiti til.
Að hans mati gengur ekki að gera fólki erfitt fyrir að eignast húsnæði og ætla síðan að mæta afleiðingunum með félagslegum úrræðum. Breyta þurfi stefnunni, lækka kostnað og gera byggingu ódýrara húsnæðis mögulega.
Gagnrýnir eignamat Félagsbústaða
Ari gagnrýnir jafnframt hvernig verðmæti fasteigna Félagsbústaða sé metið. Horft sé til markaðsvirðis þótt eignirnar séu ekki ætlaðar til sölu og leigutekjurnar séu lægri en á almennum markaði.
„Þessar eignir eru ekki til sölu og þær eru að afla tekna sem eru lægri heldur en sambærilegar eignir og matsvirði þeirra ætti að endurspegla það.“
Hann vísar til þess að samkvæmt Félagsbústöðum sé leigan almennt 33,6% undir markaðsleigu. Það eigi að hafa áhrif á mat eignasafnsins. Ari segir þessa gagnrýni enn eiga við, þrátt fyrir meirihlutaskiptin í borginni.
Enn sé verið að „fegra tölurnar umfram tilefni“, segir hann.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗