Segir náttúru- og innviðagjald andstætt lögum
„Þegar við sáum áformin þar sem boðað er að taka upp sérstakt náttúru- og innviðagjald, þá óskuðum við eftir að fá afhent það lögfræðiálit sem atvinnuvegaráðuneytið lét vinna varðandi lögmæti þess gagnvart EES-samningnum. Í því áliti sem atvinnuvegaráðuneytið leggur til grundvallar finnst okkur kveðið á um að þetta sé ekki lögmætt og rökstuðningurinn frekar hæpinn,“ segir Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, í samtali við Morgunblaðið.
Í lögfræðiálitinu, sem er frá Forum lögmönnum, kemur m.a. fram að verulegar líkur séu á því að fyrirhuguð gjaldtaka standist ekki ákvæði tiltekinna greina EES-samningsins. Er þar einkum horft til þess að þótt náttúruvernd sé tilgreind sem ein af röksemdunum fyrir gjaldtökunni þá sæti hún þeirri takmörkun að það sjónarmið að auka ríkistekjur sé ófullnægjandi réttlætingarástæða fyrir gjaldtökunni.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗