Húsnæðið óboðlegt: Kvarta yfir sársauka í vitum
Starfsaðstaða lögreglunnar á Vestfjörðum er að mestu leyti í gamla rými Íslandsbanka í Stjórnsýsluhúsinu. Ljósmynd/Lögreglan
Tveir varðstjórar lögreglunnar á Vestfjörðum segja starfsaðstöðu lögreglunnar með öllu óboðlega og kalla eftir tafarlausum viðbrögðum við stöðunni.
Starfsemi lögreglunnar fluttist í maí 2025 úr lögreglustöðinni á Ísafirði í annað húsnæði vegna myglu. Það húsnæði átti að vera til bráðabirgða en eitt og hálft ár hefur liðið án nokkurra úrbóta.
Gerðar athugasemdir árið 2015
Ingvar Jakobsson, formaður Lögreglufélags Vestfjarða og aðalvarðstjóri lögreglunnar á Vestfjörðum, segir fólk skiljanlega orðið þreytt á stöðunni.
„Þetta byrjaði í rauninni 2015 þegar Vinnueftirlitið gerði fyrst athugasemdir við loftræstingu á lögreglustöðinni. Þá átti að skipta um loftræstingu sem var aldrei gert og er ekki búið að gera ennþá,“ segir Ingvar í samtali við mbl.is.
Loks hafi málið þokast áfram þegar Lögreglufélag Vestfjarða fékk sig fullsatt af hunsuðum beiðnum um myglusýnatöku og ákvað stjórn félagsins að panta sýnatöku sem félagið sjálft greiddi fyrir.
Voru öll sýnin langt yfir heilbrigðum mörkum og starfsemin flutt í gamla Íslandsbankarýmið í Stjórnsýsluhúsinu.
Mismunandi túlkun á forgangi
Eftir eitt og hálft ár hafa engar úrbætur orðið á gamla húsnæðinu. Ingvar segir að þingmenn og ráðuneyti hafi tjáð þeim að mál þeirra væri í algjörum forgangi, sem hann segir skjóta skökku við: „Þau eru að tala við lögregluna sem mælir forgang í mínútum og sekúndum.“
Til að bæta gráu ofan á svart er aðstaða nýja húsnæðisins of lítil og loftgæðin slæm þar sem engin loftræsting er í húsinu. Að sögn Ingvars hefur starfsfólk ítrekað kvartað vegna sársauka í vitum, augum og lungum vegna þessa. Þau hafi jafnframt reynt að fá myglusýnatöku í þessu húsnæði án árangurs.
Ingibjörg Elín Magnúsdóttir, varðstjóri hjá Lögreglunni á Vestfjörðum, segir í Facebook-færslu sinni ástandi húsnæðisins ábótavant. Meðal annars sé rannsóknardeild lögreglunnar komið fyrir í litlu herbergi, starfsaðstaða vakthafandi lögreglumanna sé í sama rými og kaffistofan og fataherbergi, þar sem starfsfólk skiptir um föt, sé í annarra manna augnsýn.
Stutt í að fólk hugsi sér til hreyfings
Aðspurður hvort ástandið hafi orðið til þess að fólk flosni úr starfi segir Ingvar að svo sé ekki. „Ég held það lýsi því hvað lögreglustarfið er mikið hugsjónastarf. En það kæmi mér ekki á óvart að fólk myndi fara að hugsa sér til hreyfings ef þetta fer ekki að gerast fyrir áramót,“ segir hann.
Ingvar Jakobsson, formaður Lögreglufélags Vestfjarða og aðalvarðstjóri lögreglunnar á Vestfjörðum. Ljósmynd/Aðsend
Í ályktun Lögreglufélags Vestfjarða í sumar kröfðust félagsmenn aðgerða sem tryggja öryggi og heilsu starfsmanna. Telja þeir núverandi húsnæði lögreglunnar hættulegt starfsfólki og algjörlega óboðlegt sem vinnuumhverfi.
Þá skora þau á ríkið, hlutaðeigandi ráðherra og aðra ábyrgðaraðila að bregðast tafarlaust við ástandinu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
