Facebook bannar bók Ólafs Ragnars

Bók Ólafs Ragnars Grímssonar Vegferð um veröldina fær ekki náð fyrir augum Facebook. Samsett mynd

Meta heimilar ekki auglýsingar á nýrri bók Ólafs Ragnars Grímssonar á Facebook. Bókin ber heitið Vegferð um veröldina og fjallar um kafla í ævi Ólafs Ragnars. Þar segir hann meðal annars frá námsárum sínum í Bretlandi, alþjóðlegu stjórnmálastarfi, samskiptum við erlenda þjóðarleiðtoga og leiðinni að forsetakosningunum árið 1996.

Jón Heiðar Gunnarsson, markaðsstjóri Forlagsins, segir að Meta hafi gefið þær skýringar að bókin sé „of pólitísk“. Fyrirtækið hafi ekki breytt afstöðu sinni þrátt fyrir að Forlagið hafi tvívegis gert athugasemdir við matið.

„Eins og gengur erum við að auglýsa þær bækur sem eru til sölu hjá okkur, enda jólabókaflóðið fram undan. Ólafur Ragnar Grímsson er að gefa út bók hjá okkur um þessar mundir, Vegferð um veröldina, sem fjallar um miðkaflann í lífi hans og hvernig hann myndaði tengslanet á þeim tíma. Framan á kápunni eru meðal annars myndir af honum að veita verðlaunum viðtöku frá  forseta Indlands,“ segir Jón Heiðar.

Jón Heiðar Gunnarssson markaðsstjóri Forlagsins með bókina í hönd.

Jón Heiðar Gunnarssson markaðsstjóri Forlagsins með bókina í hönd. Ljósmynd/Aðsend

Ekki bann á Íslandi 

Að sögn Jóns Heiðars metur Meta auglýsingar á bókinni sem of pólitískar.

„Við erum líklega að berjast við einhver algrím og botta sem flagga þessari bók sem of pólitískri. Við höfum tvívegis haft samband við Meta og gert athugasemdir og vitum ekki hvort það sé innihaldið eða kápan sem leiðir til þessa, en Meta er ekki að gefa sig. Við munum þó halda áfram að reyna,“ segir Jón Heiðar.

Meta bannaði í október 2025 greiddar auglýsingar um stjórnmál, kosningar og samfélagsmál á Facebook og Instagram innan Evrópusambandsins vegna nýrra evrópskra reglna um gagnsæi stjórnmálaauglýsinga. Bannið gildir ekki á Íslandi, þar sem slíkar auglýsingar eru áfram heimilar að uppfylltum skilyrðum um auðkenningu auglýsenda og gagnsæi.

Eldri auglýsingar einnig merktar

Jón Heiðar segir að Forlagið hafi einnig fengið villutilkynningar vegna eldri auglýsinga, jafnvel auglýsinga sem voru birtar fyrir nokkrum árum.

„Það var til að mynda bók sem fjallaði um seinni heimsstyrjöldina sem við fengum tilkynningu um. Við höfum hins vegar flogið í gegn með aðrar nýjar bækur en ekki endurminningar Ólafs Ragnars. Hann er stoppaður. Við erum til að mynda nýlega búin að gefa út bók eftir Elizu Reid, fyrrverandi forsetafrú, og bók sem heitir Síðasti spellvirkinn eftir Anders Hauch Fenger, sem er með myndir úr seinni heimsstyrjöldinni, en það hefur ekki verið stoppað,“ segir Jón Heiðar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅