Íslenskum tegundum fækkar mikið
Bruggmeistararnir Árni Theodór Long og Sturlaugur Jón Björnsson í Borg með JólaÆði sem gerður er í samstarfi við Góu. Ljósmynd/Hari
Sala á jólabjór hefst í Vínbúðum ÁTVR í dag en auk þess er hægt að næla sér í þessa vinsælu vöru hjá netverslunum og örbrugghúsum. Á morgun er svo sjálfur J-dagurinn þegar sala á vinsælasta jólabjórnum, Tuborg julebryg, hefst á börum og veitingahúsum.
Talsvert færri tegundir jólabjórs verða á boðstólum þetta árið en síðustu ár. Alls verða 75 tegundir fáanlegar þetta árið en þær voru 90 talsins í fyrra. Samdrátturinn nemur 17% og má hann nær alfarið rekja til innlendra framleiðenda.
Innlendum bjór- tegundum fækkar
Að þessu sinni eru 20 erlendar jólabjórtegundir fáanlegar en þær voru 21 í fyrra. Hins vegar eru íslensku bjórarnir aðeins 55 en voru 69 í fyrra. Eins og sjá má á meðfylgjandi grafi hafa vinsældir jólabjórsins dalað síðustu ár en þær náðu hámarki á covid-tímanum. Bæði fór salan í hæstu hæðir en tegundum fjölgaði sömuleiðis til muna.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗