Mikill áhugi á einbýlishúsalóðum

Innlent | mbl | 5.11.2026 | 13:06

Tilboðin voru opnuð og tekin fyrir á fundi bæjarráðs Garðabæjar þriðjudaginn 3. nóvember. mbl.is/Eyþór

Alls bárust 454 tilboð í byggingarrétt í Hnoðraholti suður í Garðabæ. Langflest voru tilboðin í einbýlishúsalóðir, eða 394 talsins. 57 tilboð bárust í raðhúsalóðir.

Þetta kemur fram á vef Garðabæjar.

Garðabær auglýsti í október byggingarrétt fyrir 26 einbýlishúsalóðir og samtals 23 íbúðir í fjórum raðhúsalengjum til sölu á almennum markaði.

Jafnframt var óskað eftir tilboðum frá byggingarsamvinnufélögum í byggingarrétt fyrir 18 íbúðir í fimm raðhúsalengjum. Tilboðsfrestur rann út föstudaginn 30. október.

Tilboðin voru opnuð og tekin fyrir á fundi bæjarráðs Garðabæjar þriðjudaginn 3. nóvember.

Verið er að fara yfir tilboðin og flokka þau nánar áður en þau verða tekin til afgreiðslu og kynningar á fundi bæjarráðs þriðjudaginn 10. nóvember.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅