Talmeinafræðingar inn í grunnskóla
Talmeinafræðingar frá Heyrnar- og talmeinastöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) munu taka til starfa í fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Um tilraunaverkefni til tveggja ára er að ræða. Er það að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins og sagt fela í sér nýja nálgun í talmeinaþjónustu.
Ætlað að bregðast við löngum biðlistum
Í tilkynningunni segir að löng bið hafi verið eftir þjónustu talmeinafræðinga undanfarin ár og í viðleitni til að bregðast við þeirri stöðu hafi ráðuneytið efnt til verkefnisins.
Mun einn talmeinafræðingur frá HH vera staðsettur í hverjum skóla. Til stendur að ráða fleiri talmeinafræðinga til að taka þátt í tilraunaverkefninu og útvíkka verkefnið þannig að það nái til fleiri skóla.
Verkefnið nær til barna með tal- og málmein sem falla undir viðmið Sjúkratrygginga Íslands. Í tilkynningunni segir að börn þessi séu með alvarleg frávik í málþroska og framburði. Þá hafi mörg þeirra beðið lengi á biðlistum eftir þjónustu.
Tíu til tólf prósent barna á grunnskólaaldri
Anna Ósk Sigurðardóttir talmeinafræðingur leiðir verkefnið og segir að áætlað sé að um tíu til tólf prósent barna á grunnskólaaldri þurfi á þjónustu talmeinafræðinga að halda.
„Það er mikið í húfi að börn í þessari stöðu fái snemmtæka þjónustu sem hefur því miður ekki verið raunin. Ég hef væntingar um að þetta tilraunaverkefni eigi eftir að þroskast hratt og verði liður í bættri þjónustu við börn um allt land,“ er í tilkynningunni haft eftir Ölmu Möller heilbrigðisráðherra.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗