Hefja rannsókn á samskiptum ráðherra við Landsvirkjun

Til rannsóknar er hvort fjármálaráðherra hafi afvegaleitt þingið með þeirri lýsingu sem hann gaf á starfslokum fráfarandi forstjórans Harðar Arnarsonar. mbl.is/Eyþór

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur samþykkt að hefja frumkvæðisathugun á samskiptum Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra og Landsvirkjunar og hvort ráðherra hafi afvegaleitt þingið með þeirri lýsingu sem hann gaf á starfslokum fráfarandi forstjórans Harðar Arnarsonar.

„Þetta var tekið fyrir í nefndinni í dag með einróma samþykki allra nefndarmanna,“ segir Ingveldur Anna Sigurðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks og annar varaformaður nefndarinnar, við mbl.is. Málið sé því hafið en nú sé verið að leggja lokahönd á spurningarnar og gefa nefndarmönnum færi á að koma með athugasemdir.

Telja möguleika á pólitískum afskiptum

„Það liggur fyrir að Daði kom í þingið 19. október og sagði að öll sagan væri sögð gagnvart þingheimi, í svari við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar [þingmanns Sjálfstæðisflokksins], en svo kemur í ljós að til dæmis liggur fyrir minnisblað frá Herði þar sem hann lýsir ákveðnum afskiptum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og þar með ráðherra af starfsemi Landsvirkjunar,“ segir Ingveldur enn fremur.

„Daði gaf þetta ekki upp, þessi gögn, gagnvart þinginu sem hann á að gera samkvæmt þingskaparlögum. Það er líka vert að taka það fram að hann hreinsaði út fyrri stjórn Landsvirkjunar og setti nýja stjórn sem hafði síðan öll þessi afskipti af starfsháttum Landsvirkjunar. Þannig að það er vert að skoða þetta og við teljum að þarna gætu legið einhver pólitísk afskipti af og ESA [eftirlitsstofnun EFTA] gæti komið með puttann í þetta.“

Þá segist hún aðspurð ekki gera ráð fyrir að rannsóknin taki of langan tíma.

„Sökum stærðargráðu þessa máls þá reynum við að hafa hraðar hendur en þetta mun eflaust vera orðið eitthvað ljósara fyrir um miðjan mánuð, tel ég, þegar við fáum gögnin í hendurnar.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅