„Auðvitað hefur maður áhyggjur“
Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir áhyggjuefni ef framkvæmdir við hótelturninn stöðvast til lengri tíma. Samsett mynd: mbl.is/Hákon Pálsson
Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, hefur áhyggjur af stöðu Radisson Red-hótelturnsins við Skúlagötu eftir að framkvæmdir við hann voru stöðvaðar fyrr í vikunni. Hún segir borgina nú afla upplýsinga um stöðu verkefnisins.
„Auðvitað hefur maður áhyggjur af því hver staðan á verkefninu er. Það væri ekki gott ef að framkvæmdir myndu stöðvast í lengri tíma. Það er alveg ljóst,“ segir Guðný María í samtali við mbl.is.
„Við erum bara að afla upplýsinga og reyna að átta okkur á stöðunni.“
Hún kveðst enn ekki hafa nákvæmar upplýsingar um stöðu framkvæmdanna en segir mikilvægt að finna lausn á málinu.
Myndu hafa frumkvæði að viðræðum
Spurð hvort borgin myndi hafa frumkvæði að viðræðum ef þörf krefði segir Guðný María að það myndi hún að sjálfsögðu gera.
„Það er bara okkar hlutverk að vera meðvituð um stöðu á framkvæmdum í borginni,“ segir hún.
Guðný María telur að uppbyggingaraðilar séu nú að átta sig á stöðunni og hvaða möguleikar séu fyrir hendi. Hún segist þó ekki þekkja verkefnið nægilega vel til að segja hvað sé til skoðunar.
Óvissa um framhaldið
Eins og mbl.is hefur greint frá voru framkvæmdir við 17 hæða hótelturninn stöðvaðar á mánudag og verktakar sendir heim.
Í samtali við mbl.is í gær sagði Jón Árni Ágústsson, einn eigenda félaganna að baki hótelturninum, að tjónið á byggingunni virtist mun meira en upphaflega var talið. Hann sagði umfang þess enn óljóst og að verið væri að rannsaka tjónið á vegum bankans.
Arion banki hefur staðfest að hann sé veðhafi í verkefninu og segir unnið að lausn málsins. Ekki liggur fyrir hvenær framkvæmdir geta hafist að nýju.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗