Kjósa um verkfall í leiguflugi Icelandair
Félagsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) samþykktu í gær að efna til atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir sem takmarkast við leiguflug Icelandair og Loftleiða fyrir þriðja aðila.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Verkfallsaðgerðirnar myndu ekki ná til áætlunarflugs Icelandair og beinast fyrst og fremst að fyrirætlunum Icelandair á Möltu.
Að þeirra sögn eru aðgerðirnar með þeirri afmörkun til að hlífa farþegum í leiðakerfi Icelandair við röskun, gæta almannahagsmuna og draga úr áhrifum hugsanlegra aðgerða á íslenskt efnahagslíf.
Kjarasamningar hafa verið lausir frá hausti 2025
Kjaraviðræður FÍA og Samtaka atvinnulífsins hafa staðið yfir hjá ríkissáttasemjara frá því í vor. Kjarasamningar hafa verið lausir frá hausti 2025.
Í tilkynningunni segir að kjaradeila flugmanna og Icelandair snúist ekki lengur aðeins um kaup og kjör heldur um að halda störfum á Íslandi. Með kaupum á 49% hlut í Fly Play Europe tryggði Icelandair sér aðgang að maltnesku flugrekstrarleyfi og segir í tilkynningunni að flugfélagið hyggist úthýsa störfum þangað.
Þá er sagt að Icelandair ætli að ganga fram hjá íslenskum kjarasamningum með því að færa verkefni fyrirtækisins til flugmanna á lakari kjörum.
FÍA fordæmir þessar fyrirætlanir fyrirtækisins og segir það félagslegt undirboð og sniðgöngu kjarasamninga. Enn fremur segir að forgangsréttur flugmanna Icelandair í kjarasamningi sé skýr varðandi forgang þeirra í þau störf sem Icelandair hyggst manna með leiguáhöfnum eða gerviverktökum í gegnum Fly Play Europe.
Skora á stjórnendur Icelandair
Í tilkynningunni segir að krafa FÍA í kjaraviðræðum sé sú að flugmenn njóti sömu kjarabóta og samið var um á almennum vinnumarkaði í nafni þjóðarsáttar. Þar segir að þær kjarabætur hafi þegar boðist öðrum starfshópum hjá Icelandair.
Að auki segir að FÍA hafi, í ljósi þess hve þungt eldsneytisverð, gengi krónunnar og ETS-gjöld vega í rekstri Icelandair, boðist til að gera fleytisamning, það er samning til skamms tíma með hóflegum kjarabótum, sem Icelandair hafi hafnað.
Loks hafi FÍA sagst reiðubúið að fallast á launafrystingu. Forsenda þess var að allir starfsmenn Icelandair bæru sinn hluta byrðanna. Icelandair hafnaði þeirri leið einnig.
Að lokum skorar FÍA á stjórnendur Icelandair að falla frá áformum um flutning starfa úr landi, virða kjarasamningsbundinn forgangsrétt flugmanna og ganga til samninga á sama grunni og öðrum starfshópum hefur þegar boðist.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗