Selja jólabjórinn 20% ódýrari
Áfengisverslunin Sante hefur hafið sölu á Tuborg Julebryg sem er bruggaður í Danmörku og fluttur beint þaðan til landsins. Bjórinn er mun ódýrari þar á bæ en í verslunum ÁTVR, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sante.
Sante selur hverja 330 ml dós á 359 krónur en dósin í verslunum ÁTVR kostar 449 krónur. Verðið er því 20% lægra. Kaupa þarf 12 dósa kassa hjá Sante.
Arnar Sigurðsson, eigandi Santé, segir að ekki hafi gengið þrautalaust að koma bjórnum til landsins.
„Við höfum í um þrjú ár reynt að kaupa dönsku framleiðsluna í gámavís af milliliðum sem annast dreifingu í Evrópu,“ segir Arnar. „Tvisvar komust á samningar. Í bæði skiptin féllu viðskiptin niður að fyrirmælum Tuborg, með þeirri skýringu að það væri „due to local licensing agreement“.“
Hann segir skýringuna auðskiljanlega. „Á mannamáli þýðir þetta að danski bjórinn er staðkvæmdarvara þess íslenska. Bærist hann hingað óhindrað þyrfti að keppa við hann um verð, og það var fyrirbyggt.“
Arnar telur að tilraunir til að koma í veg fyrir sölu Santé á Tuborg Julebryg kunni að vera brot á samkeppnisreglum. „Framleiðanda er heimilt að hafa umboðsaðila á tilteknu svæði. Honum er hins vegar óheimilt að banna dreifingaraðila að afgreiða umbeðna pöntun frá kaupanda í öðru landi. Það telst til alvarlegustu brota samkvæmt reglum ESB um lóðrétta samninga, og sömu reglur gilda á öllu EES-svæðinu, Ísland meðtalið.“
Hann segir að ÁTVR taki við vörum á því verði sem heildsalinn afhendi þær á og bæti svo við sinni álagningu. Allt eins megi búast við að frekari innflutningur bætist við hjá Sante.
„Þetta er ein sending af einum jólabjór. Sama saga gæti endurtekið sig í fjölda vara. Ef neytendur fá valfrelsi verður 20 prósenta verðmunur ekki frétt, heldur venjulegur þriðjudagur,“ segir Arnar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

