Lee Child á leiðinni til landsins
Lee Child er einn söluhæsti spennusagnahöfundur heims og hefur selt um 200 milljónir bóka. AFP/Erika Goldring
Stærsta nafnið á gestalista bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir þetta árið er spennusagnahöfundurinn Lee Child. Hátíðin fer fram í næstu viku, frá miðvikudegi til laugardags, og er dagskráin afar þétt.
„Hann er ágætur vinur minn. Ég er búin að vera að suða í honum í einhver ár að koma og núna var hann loksins laus. Það er mjög ánægjulegt að fá hann,“ segir Yrsa Sigurðardóttir, einn skipuleggjenda Iceland Noir, um komu Lees Childs.
Lee Child er breskur og þekktastur fyrir bækur sínar um harðhausinn Jack Reacher. Bækur hans hafa selst í yfir 200 milljón eintökum um heim allan og verið þýddar á yfir 50 tungumál. Vinsælir þættir eftir sögunum hafa síðustu ár verið sýndir á Amazon Prime.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗