„Það eru allir að frjósa úr kulda“

Hjólhýsabyggðin á Sævarhöfða.

„Það eru enn 12 manns þarna og allt rafmagnslaust. Það eru allir að frjósa úr kulda,“ segir Bergþóra Pálsdóttir, talskona hjólabúa, spurð út í hjólhýsabyggðina á Sævarhöfða.

Reykjavíkurborg tók rafmagnið af svæðinu og skrúfaði fyrir vatnið núna um mánaðamótin eftir að hafa rift samningi í sumar um lóð í Gufunesi fyrir hjólhýsabyggð.

Sjúklingar í viðkvæmri stöðu

Bergþóra segir þrjá krabbameinssjúklinga vera á meðal íbúa á svæðinu, auk þess sem annar íbúi er að jafna sig eftir kransæðaaðgerð fyrr á árinu. Þetta fólk sé því í viðkvæmri stöðu.

Hún segir íbúana þó ekki ætla að gefa sig og fara á brott, enda geti þeir hvergi annars staðar farið til að komast í rafmagn. Einn þeirra er nú þegar búinn að tengja rafstöð við hjólhýsið sitt.

Skilur ekki neikvæðnina

„Mér finnst að Einar [Þorsteinsson, formaður borgarráðs] eigi að svara fyrir af hverju hann er svona neikvæður gagnvart þessu. Ég skil hann ekki. En hann náttúrulega vill ekki svara neinu,“ segir Bergþóra og bætir við að enginn frá borginni hafi komið á Sævarhöfða til að bjóða fram aðstoð þrátt fyrir orð Einars þess efnis.

Fyrr á árinu sagði Einar ákvörðun Reykjavíkurborgar um að loka aðstöðu hjólhýsabyggðarinnar á Sævarhöfða koma til að kröfu slökkviliðsins.

Frá vinstri: Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, og Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bergþóra ítrekar að fólkið ætli að vera áfram á Sævarhöfða þrátt fyrir að vetur sé genginn í garð „Hann hefur það þá bara á samviskunni að drepa einhvern,“ segir hún og á þar við Einar. „Sjúklingar þola ekki svona endalaust," bætir hún við og segir formanninn þurfa að viðurkenna mistök sín í málinu. 

„Eins og að vera í litlu einbýlishúsi“

Bergþóra bjó í hjólhýsabyggðinni þegar hún var í Laugardalnum og flutti síðan með yfir á Sævarhöfða. Núna býr hún aftur á móti í íbúð. Engu að síður segir hún ljúft að búa í hjólhýsi.

„Mér finnst bara indælt að búa svona. Mörgum þykir það skrítið en þegar þú ert búin að gera þetta þá er þetta bara ljúft. Þetta er eins og að vera í litlu einbýlishúsi og vera í friði en maður fær náttúrlega engan frið svona. Alltaf eitthvað álag á mann og stress og þú veist ekkert hvar þú verður næstu nótt,“ greinir hún frá. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅