Minnast stuðningsmanns sem veiktist skyndilega
Enska knattspyrnufélagið Leeds United mun minnast stuðningsmanns síns sem lést eftir að hafa veikst í stúkunni fyrir leik liðsins gegn Manchester United á Elland Road sunnudaginn 18. október.
Colin Westby var 68 ára gamall og var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa veikst. Félagið greindi frá því á samfélagsmiðlum að honum hefði verið haldið sofandi með lyfjum fyrst um sinn en eftir að hann sýndi engin viðbrögð um tíma var ákveðið að hætta lífsbjargandi meðferð.
Félagið mun minnast Westby á 68. mínútu næsta leiks síns í ensku úrvalsdeildinni gegn Tottenham Hotspur á laugardaginn.
Í yfirlýsingu Leeds kemur fram að Westby hafi verið dyggur stuðningsmaður félagsins og átt ársmiða í meira en 50 ár.
„Hugur allra hjá Leeds United er hjá fjölskyldu og vinum Colins á þessum erfiðu tímum,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
