Ótrúlegur sigur Como - Haaland hetja City

Það var eðlilega létt yfir leikmönnum Como sem unnu ótrúlegan 9:1-útisigur í kvöld gegn Lens. AFP/Francois Lo Presti

Como vann ótrúlegan 9:1-stórsigur á Lens í Frakklandi í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld. Como vann þar með einn stærsta sigur í sögu keppninnar.

Anastasios Douvikas skoraði þrennu fyrir ítalska liðið sem fór á kostum gegn Lens. Como er í fjórða sæti með 9 stig en Lens eru með 3 stig í 33. sæti.

Manchester City vann Leipzig, 3:2, eftir spennandi leik í Þýskalandi. Sjálfsmark Castello Lukeba kom City yfir undir lok fyrri hálfleiks en Ridle Baku jafnaði fyrir heimamenn í upphafi þess seinni. 

Enzo Fernandez kom City í 2:1 á 58. mínútu en Norðmaðurinn Antonio Nusa jafnaði aðeins þremur mínútum síðar. Það var svo annar Norðmaður Erling Braut Haaland sem skoraði sigurmark enska liðsins á 78. mínútu og tryggði stigin þrjú.

Manchester City er í sjöunda sæti með 9 stig en Leipzig í 30. sæti með 3 stig.

Erling Haaland skoraði sigurmark Manchester City þegar tólf mínútur voru til leiksloka. AFP/Odd Andersen

Porto vann sannfærandi 4:1-sigur á Napoli í Portúgal og náði þar með sínum fyrsta sigri í deildakeppninni á tímabilinu.

Porto er í 26. sæti með 3 stig en Napoli er sæti neðar með sama stigafjölda.

Borussia Dortmund lagði Real Betis, 2:1. Fabio Silva kom Dortmund yfir í upphafi síðari hálfleiks en Aitor Ruibal jafnaði fyrir Betis. Varamaðurinn Konstantinos Karetsas skoraði sigurmarkið á 72. mínútu.

Dortmund er í 12. sæti með 9 stig en Betis er sæti ofar, einnig með 9 stig.

Club Brugge vann PSV Eindhoven á útivelli, 2:1. Nicolo Tresoldi kom belgíska liðinu yfir í fyrri hálfleik og eftir að Kodai Sano jafnaði fyrir PSV skoraði Carlos Forbs sigurmarkið á 65. mínútu.

Club Brugge er í 9. sæti með jafnmörg stig en PSV er í 24. sæti með fjögur.

Viking frá Noregi vann Sabah frá Aserbaídsjan, 4:1. Sabah komst yfir í fyrri hálfleik en Viking sneri taflinu sér í hag og nýtti sér meðal annars að gestirnir misstu mann af velli með rautt spjald.

Viking er nú komið með 4 stig og eru í 22. sæti en Sabah er í 31. sæti með stigi minna.

Amin Cosic var ónotaður varamaður hjá Viking.

Úrslit kvöldsins:

Lens – Como 1:9
RB Leipzig – Manchester City 2:3
Porto – Napoli 4:1
Borussia Dortmund – Real Betis 2:1
PSV Eindhoven – Club Brugge 1:2
Viking – Sabah 4:1

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅