„Ákveðin kúnst að spila svona leiki“

Gísli Þorgeir Kristjánsson veitir ungum stuðningsmönnum Íslands eiginhandaráritun.

Gísli Þorgeir Kristjánsson veitir ungum stuðningsmönnum Íslands eiginhandaráritun. mbl.is/Eythor Arnason

„Það er aldrei sjálfsagt að vinna svona stórt,“ sagði hinn þaulreyndi landsliðsmaður í handbolta, Gísli Þorgeir Kristjánsson, eftir 22 marka sigur á Úkraínu í undankeppni EM 2028 í Laugardalshöll í kvöld.

„Það er ákveðin kúnst að spila svona leiki og halda dampi allan tímann vitandi það að getumunurinn er mikill. Að mínu mati gerðum við þetta mjög vel og héldum út í 60 mínútur af fullum krafti.

Það hefði verið auðvelt að gefa eftir í seinni hálfleik með þetta risa forskot í hálfleik. Þess í stað gerðum við vel, bættum í og héldum út allan leikinn,“ sagði Gísli Þorgeir spurður út í frábærar 60 mínútur Íslands í kvöld.

Gísli Þorgeir Kristjánsson brýst í gegnum vörn Úkraínu.

Gísli Þorgeir Kristjánsson brýst í gegnum vörn Úkraínu. mbl.is/Eyþór Arnason

Hvað fannst þér ganga best í ykkar leik í kvöld?

„Við vorum agaðir í sókninni sérstaklega og vorum bara að gera vel á öllum sviðum leiksins myndi ég segja. Við gerðum lítið af mistökum. Það er líka mikilvægt í svona leikjum að byrja þá vel og byggja upp gott forskot strax því ef þú gerir það ekki þá getur þú lent í veseni með að hrista liðið af þér. Okkur tókst þetta og okkur tókst þetta vel.“

Það fara allir glaðir á koddann í kvöld

Það fengu allir að spreyta sig í kvöld og það kom jákvætt framlag frá öllum leikmönnum liðsins. Það sem meira er að íslenska liðið gaf aldrei eftir þrátt fyrir að yngri og óreyndari leikmenn fengju sviðið í kvöld. Gísli var spurður út í mikilvægi þess og hvað það þýðir fyrir breidd íslenska liðsins.

„Það er bara mjög mikilvægt og hvernig sem við lítum á þennan leik þá fara allir glaðir á koddann í kvöld. Við vildum skila þessu verkefni vel frá okkur og gera kvöldið skemmtilegt fyrir allt fólkið sem kom hingað til að styðja við bakið á okkur. Það er ekki sjálfgefið að það sé uppselt í Laugardalshöll og það er alltaf skemmtilegt að koma hingað og spila fyrir fólkið okkar. Ég vona því að áhorfendur fari líka glaðir á koddann.“

Ef ég myndi neyða þig til að finna til eitthvað sem hefði mátt betur fara í kvöld, hvað væri það?

„Ég veit það ekki. Handbolti er auðvitað feilsport og það er alltaf hægt að tína eitthvað til en ég get ekki sagt þér frá neinu hér og nú.“

Gísli Þorgeir Kristjánsson sækir að marki Úkraínu.

Gísli Þorgeir Kristjánsson sækir að marki Úkraínu. mbl.is/Eyþór Arnason

Leikurinn gegn Eistlandi er skyldusigur

Næsti leikur er gegn Eistlandi á útivelli. Er það skyldusigur líkt og í kvöld?

„Já, við eigum að gera þá kröfu á okkur sjálfa að vinna Eistland. Þeir eru betri en Úkraína en það á ekki að skipta máli hvað varðar niðurstöðuna, við eigum að vinna Eista. Það gerist hins vegar ekki af sjálfu sér og ef við mætum ekki með fulla orku í Tallin þá verður þetta vesen,“ sagði Gísli Þorgeir í samtali við mbl.is.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅