Dóttir Heuermanns fær ekki að sitja í kviðdómi
Hin hálf-íslenska Victoria Heuermann, dóttir raðmorðingjans Rex Heuermanns sem kenndur er við Gilgo-strönd, og Ásu Ellerup, var leyst undan kviðdómsskyldu á Long Island í Bandaríkjunum á dögunum eftir að dómari úrskurðaði að hún myndi valda of mikilli truflun við dómshald vegna faðernis síns.
The New York Post greinir frá því að Victoria Heuermann, sem er 30 ára, hafi verið leyst frá störfum af dómara eftir að hún mætti í síðustu viku samkvæmt boðun sem mögulegur kviðdómandi í réttarhöldum vegna kynferðisbrots gegn barni.
Hvorki Robert McDonald, dómari við hæstarétt ríkisins, saksóknarinn né verjandinn báru í fyrstu kennsl á Heuermann sem dóttur raðmorðingjans, þrátt fyrir að hún hafi margoft komið fram opinberlega og veitt viðtöl vegna morða föður hennar á átta konum.
Fékk að ræða við dómarann í einrúmi
Hver hún var kom hins vegar fljótlega í ljós í hluta kviðdómsvalsins þegar hún var spurð hvort hún hefði einhvern tímann verið sakfelld fyrir glæp eða þekkti einhvern sem hefði verið það.
Dómarinn spurði hana þá hvort hún gæti verið óhlutdræg þrátt fyrir alræmdan sakaferil föður síns.
„Þegar kom að þessari einu spurningu bað hún um að fá að ræða við dómarann í einrúmi. Þau fóru með hana inn á skrifstofu dómarans þar sem hún svaraði spurningunni og síðan ákváðu þau að leysa hana undan skyldunni,“ sagði lögmaður hennar, Robert Macedonio.
„Hún var enn reiðubúin að sitja í kviðdómnum, en ég geri ráð fyrir að verjandinn, ákæruvaldið og dómarinn – ég hef ekki lesið þingbókina, ég er ekki viss um hver ákvað að þau vildu ekki hafa hana þar,“ sagði Macedonio.
Myndi valda truflun
Macedonio sagði að Victoria, sem býr í Massapequa Park, hefði kviðið því að stíga aftur inn í réttarsal eftir réttarhöldin yfir föður hennar og hann hefði jafnvel boðist til að skrifa bréf til dómstólsins fyrir hennar hönd þar sem óskað yrði eftir því að hún yrði undanþegin.
„Það er ekki eins og hún hafi einhverja yfirþyrmandi löngun til að sitja í kviðdómi. Enginn hefur yfirþyrmandi löngun til að gegna kviðdómsskyldu,“ sagði hann.
„En þegar þau spyrja hana spurningarinnar svarar hún heiðarlega. Auðveldara svarið hefði verið nei, og þá hefði hún verið leyst undan skyldunni. Það er erfiðara að segja já,“ sagði hann.
Dómarinn komst að lokum að þeirri niðurstöðu að hún myndi valda truflun í réttarhöldunum.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗