Eru dagar MAGA-hreyfingarinnar taldir?

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, dreifir MAGA-derhúfum á kosningafundi í Lubbock í Texas í október. AFP/Kent Nishimura

Þungur ósigur repúblikana í þingkosningunum í Bandaríkjunum í gær hefur vakið spurningar um framtíð flokksins og hvort dagar MAGA-hreyfingar Donalds Trump Bandaríkjaforseta séu taldir.

Innan flokksins heyrast nú æ háværari raddir um að repúblikanar þurfi að hverfa frá stefnu Trump og snúa aftur til hefðbundnari íhaldsstefnu ætli þeir sér að endurheimta traust kjósenda.

Í leiðara Wall Street Journal í dag var kallað eftir uppgjöri innan flokksins og varað við því að þjóðernishyggja og sundrung myndu ekki skila honum árangri til framtíðar.

Blaðið sagði tolla og fjöldabrottvísanir innflytjenda ekki geta komið í stað aukins kaupmáttar. Þá dygði ekki að höfða eingöngu til dyggustu stuðningsmanna MAGA-hreyfingarinnar þegar kjósendur af rómönskum uppruna, óháðir kjósendur og íbúar úthverfa hefðu snúið baki við flokknum.

„Trump er enn forseti ykkar“

Viðbrögðin í Hvíta húsinu voru með öðrum hætti. Fyrsta færsla þess á samfélagsmiðlinum X í dag sýndi alvarlegan Trump með áletruninni „Trump er enn forseti ykkar“.

Trump getur setið í embætti til janúar 2029 en samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna getur hann ekki boðið sig fram í þriðja sinn.

Ósigurinn hefur engu að síður veikt stöðu hans verulega og þegar eru hafnar vangaveltur um hver muni taka við forystu repúblikana fyrir forsetakosningarnar 2028.

JD Vance varaforseti Bandaríkjanna, sem þykir líklegur forsetaframbjóðandi, kenndi stríðinu í Mið-Austurlöndum um ósigurinn en gætti þess að beina gagnrýninni ekki að Trump sjálfum.

Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, gekk lengra og lýsti úrslitunum sem nánast gereyðingu fyrir repúblikana. Hann taldi jafnvel að flokkurinn gæti þurft að bíða til ársins 2032 eftir að ná aftur meirihluta á Bandaríkjaþingi.

Innan flokksins heyrast nú æ háværari raddir um að repúblikanar þurfi að hverfa frá stefnu Trump. AFP/Kent Nishimura

Vilja losna við Trump

Don Bacon, þingmaður repúblikana, sagði flokkinn þurfa að endurheimta þau grunngildi sem Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefði staðið fyrir.

„Kjósendur höfnuðu popúlisma, ringulreið, Pútín og tollum,“ skrifaði hann á X.

Marjorie Taylor Greene, fyrrverandi þingkona og áður einn dyggasti stuðningsmaður Trump, tók enn dýpra í árinni.

„Ef Repúblikanaflokkurinn vill eiga nokkra framtíð verður hann að reka Donald Trump úr flokknum,“ sagði hún.

Matthew Boyle, einn áhrifamanna á hægrisinnaða fréttavefnum Breitbart, hvatti sömuleiðis til stefnubreytingar. Hann sagði repúblikana þurfa að hætta endalausum stríðsrekstri, einbeita sér að efnahagslegum hagsmunum almennings og sýna skynsemi í framkvæmd innflytjendastefnunnar.

Ekki allir tilbúnir að snúa baki við Trump

Þrátt fyrir vaxandi óánægju hafa þó fáir áhrifamenn innan Repúblikanaflokksins ráðist beint gegn Trump. Flokkurinn hefur enda tengt pólitíska framtíð sína við hann allt frá árinu 2016.

Amy Dacey, sérfræðingur við American University, segir stóru spurninguna nú hvort leiðtogar repúblikana í fulltrúa- og öldungadeildinni muni taka að fjarlægja sig forsetanum.

Hún telur þó ólíklegt að ósigurinn marki endalok MAGA-hreyfingarinnar, þótt áhrif hennar kunni að dvína.

Bob Good, fyrrverandi þingmaður repúblikana, telur hins vegar að flokkurinn verði að horfast í augu við rót vandans.

„Við verðum að byrja á því að viðurkenna að Trump var og er vandamálið. Það dugar ekki að hvísla því í hljóði,“ skrifaði hann á X.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅