Lokaúrslit gætu dregist í vikur
Stuðningsmenn demokratans Mary Peltola sem býður sig fram til öldungadeildarinnar. Hún etur kappi við núverandi þingmann repúblikana, Dan S. Sullivan, en aðeins nokkur hundruð atkvæði skilja þau að. Biðin eftir lokaúrslitum gæti reynst löng. AFP/Justin Sullivan
Aðeins nokkrir tugir atkvæða skilja að frambjóðendur til öldungadeildar Bandaríkjaþings í Mississippi og gæti þurft að bíða í nokkra daga eftir úrslitum. Í Alaska munar rúmlega 600 atkvæðum á tveimur efstu frambjóðendunum og þar gæti biðin orðið nokkrar vikur.
Þetta eru síðustu tvö öldungadeildarsætin sem óvissa ríkir um eftir stórsigur demókrata í þingkosningunum á þriðjudag. Flokkurinn hefur tryggt sér meirihluta í báðum deildum þingsins, en enn er talið í tugum kjördæma fulltrúadeildarinnar.
Meirihluti í báðum deildum en enn óljóst um mörg sæti
Demókratar og óháðir þingmenn sem starfa með þeim eru komnir með 54 sæti í öldungadeildinni á móti 44 sætum repúblikana og þar með meirihluta, en samtals eru 100 sæti í öldungadeildinni. Úrslitin í Mississippi og Alaska ráða því hversu stór meirihlutinn verður. Demókratar hafa þegar unnið sjö sæti af repúblikönum, meðal annars í Texas, Kansas og Iowa.
Í fulltrúadeildinni hafa demókratar tryggt sér að minnsta kosti 234 sæti samkvæmt samantekt, en 218 sæti þarf fyrir meirihluta. Enn á eftir að lýsa yfir sigurvegara í 42 kjördæmum. Talningin sem eftir stendur ræður því stærð meirihluta demókrata í deildinni.
Hnífjafnt í Missisippi
Í Mississippi hefur demókratinn Scott Colom 65 atkvæða forskot á Cindy Hyde-Smith, sitjandi öldungadeildarþingmann repúblikana, þegar um 96% atkvæða hafa verið talin, en samtals greiddi tæplega milljón kjósenda atkvæði í ríkinu.
Þúsundir kjörseðla eru enn ótaldir en unnið er að því að kanna hvort hluti þeirra sem greiddu þau atkvæði eru á kjörskrá. Póstsendir kjörseðlar geta borist til 10. nóvember og í Harrison-sýslu er ekki gert ráð fyrir að telja þau atkvæði fyrr en þann sama dag. Því gæti lokaniðurstaða, ef enn verður svona mjótt á munum, ekki komið í ljós fyrr en í næstu viku.
Sigur Coloms yrði sögulegur. Hann yrði fyrsti demókratinn sem kjörinn er í öldungadeildina fyrir Mississippi frá árinu 1982, en Donald Trump vann ríkið með meira en 20 prósentustiga mun í síðustu forsetakosningum. Colom yrði jafnframt fyrsti svarti öldungadeildarþingmaður ríkisins frá því að Blanche Bruce tók sæti árið 1875.
Talning gæti dregist í vikur í Alaska
Í Alaska er demókratinn Mary Peltola með 48,2% talinna atkvæða en Dan Sullivan, sitjandi öldungadeildarþingmaður repúblikana, með 47,9%. Um 74% atkvæða hafa verið talin og munar 626 atkvæðum á þeim.
Þúsundir utankjörfundaratkvæða eru enn ótaldar. Í Alaska raða kjósendur frambjóðendum í forgangsröð. Fái enginn yfir helming atkvæða við talningu fyrsta vals eru frambjóðendur felldir úr keppni og atkvæði þeirra færð samkvæmt næsta vali kjósenda.
Sú talning er fyrirhuguð 18. nóvember og stefnt er að formlegri staðfestingu úrslita 25. nóvember. Sigurvegari gæti þó orðið ljós fyrr.
Kosningabaráttan í Alaska hefur einnig einkennst af ásökunum um blekkingar. Samkvæmt rannsókn New York Times fengu aðstoðarmenn Peltolu annan mann að nafni Dan Sullivan til að bjóða sig fram í því skyni að taka atkvæði frá sitjandi þingmanninum.
Nafni þingmannsins hafði fengið 3.583 atkvæði á miðvikudagsmorgun, mun fleiri en skildu að tvo efstu frambjóðendurna. Sullivan sakaði framboð Peltolu um lygar og svindl, en hún hefur sagst ekkert hafa vitað um hið meinta ráðabrugg.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗