Segir gagnrýnina hvorki málefnalega né sanngjarna
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir þá gagnrýni sem fram kom í gær um skýringar hans á málefnum Landsvirkjunar ekki vera sanngjarna eða málefnalega.
Daði flutti munnlega skýrslu um málefni Landsvirkjunar á Alþingi í dag en þingmenn stjórnarandstöðunnar hvöttu ráðherrann í gær til þess að koma í þingið og svara fyrir hvað átti sér stað í aðdraganda afsagnar Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóri Landsvirkjunar. Þingmenn sökuðu Daða í gær um að afvegaleiða þingið um ástæður afsagnarinnar.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar komu margir hverjir upp í ræðustól á undan Daða og fögnuðu því að hann hefði orðið við beiðni þeirra að koma í þingið og svara spurningum þingmanna. Beindu þeir þó þeim tilmælum til forseta þingsins að sjá til þess að Daði svaraði spurningunum skilmerkilega.
Vísar ásökunum á bug
Deilur gærdagsins sneru að miklu leyti um óundirbúinn fyrirspurnartíma þann 19. október þar sem Daði sagði Hörð hafa sagt starfi sínu lausu að eigin frumkvæði og að það hefði snúist um stjórnarhætti en ekki stefnu fyrirtækisins.
Daði segir að þar hafi hann lýst þeim upplýsingum sem lágu fyrir á þeim tíma. „Ég stend því fyllilega við svar mitt. Ég vísa ásökunum um ósannsögli á bug,“ sagði Daði í ræðustól í dag.
Ráðherrann sagðist sammála því að gæta þyrfti að því að samskipti ráðuneytisins við stjórn Landsvirkjunar yrðu ekki túlkuð sem pólitísk afskipti af hálfu Eftirlitsstofnunar EFTA.
Sakar Daða um að brjóta lög
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kom í ræðustól að lokinni skýrslu Daða og sagði hana hafa valdið sér gríðarlegum vonbrigðum. Sakaði hann Daða um að brjóta þingskapalög með því að leggja ekki fram þær upplýsingar sem gætu haft verulega þýðingu fyrir mat þingsins á málinu.
„Af hverju sagði hæstvirtur ráðherra ekki frá því sem hann vissi þegar hann var spurður út í starfslok forstjóra og fylgdi þar með lögum um þingsköp?“ spurði Guðlaugur Daða.
Daði sagðist vísa því algerlega á bug að hann hefði ekki svarað fyrir málið með réttum hætti.
„Ég tel raunar að það sem fram hefur komið um athugasemdir forstjórans við samskiptin við stjórnina sýni einmitt svart á hvítu að um ólíka nálgun og ólíkar áherslur varðandi stjórnun var að ræða og ekki málefnalega.“
Segir svör sín ekki hafa verið góð
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, tókst þá á við Daða og spurði hann hvers vegna Daði hefði fullyrt að engir stjórnarfundir hefðu farið fram án Harðar þegar annað hefði síðar meir komið í ljós.
Daði féllst á að svör sín þegar sneru að þessu hefðu ekki verið nægilega góð. Fundir án Harðar hefðu farið fram.
„Undantekningarnar þar eru fundir sem haldnir voru vegna þessa minnisblaðs sem forstjórinn hafði sent varðandi stjórnarhætti en eru þá jafnframt líka partur af eðlilegum fundum stjórnar án forstjóra,“ sagði Daði og bætti við að hann hefði fundað með stjórnum allra ríkisfyrirtækja án þess að forstjóri þeirra væri viðstaddur.
Bergþór spurði Daða einnig hvort hann myndi styðja það að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins myndi fá öll gögn málsins og kanna sjálfstætt framgöngu Daða og ráðuneytisins í málinu. Daði sagðist styðja það að nefndin fjallaði um málið enda skipti miklu máli að traust ríkti í garð Landsvirkjunar.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗