Margir Íslendingar í erlendri óperu

Ragnar Kjartansson, Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, Anne Carson og Kristinn Sigmundsson koma öll að óperunni Herakles Mad sem frumsýnd verður í Basel í vor. Samsett mynd

Íslenskir listamenn eru í veigamiklum hlutverkum í nýrri óperu sem heitir Herakles Mad og verður frumsýnd í Theater Basel í Sviss á næsta ári, þann 23. maí. Verkið, sem er eftir Bryce Dessner, byggist á líbrettói Nóbelsverðlaunahafans Anne Carson. Ragnar Kjartansson mun annast leikmynd og búninga sem og leikstjórn ásamt Benedikt von Peter leikhússtjóra Theater Basel. Ragnar og Dessner hafa unnið mikið saman gegnum árin, m.a. að verkinu „No Tomorrow“ ásamt Margréti Bjarnadóttur. Axel Hallkell Jóhannesson starfar með Ragnari að leikmynd og Helga I. Stefánsdóttir að búningum.

Um umfangsmikla uppfærslu er að ræða og athygli vekur að íslenskir söngvarar eru í stórum hlutverkum í óperunni en Kristinn Sigmundsson syngur hlutverk Amfítrýons og Álfheiður Erla Guðmundsdóttir fer með hlutverk Írisar og Lyssu. Robert Gleadow fer með titilhlutverkið og Nicole Chevalier syngur Megöru. Þá annast André de Ridder tónlistarstjórn, en Sinfóníuhljómsveit Basel og kór Theater Basel taka þátt í flutningnum.

Eftir aðalsprautu The National

„Herakles er með frábært gengi í kringum sig og við vinnum þétt saman. Þessi ópera hefur verið lengi í kortunum eða í um það bil fimm ár og það er spennandi að sjá hana verða að veruleika,“ segir Ragnar en æfingaferlið gengur vel og búið er að prufukeyra tónlistina með hljómsveitinni, söngvurum og kórnum. „Þetta er mjög stór ópera tónlistarlega séð og öllu tjaldað til. Þá er tónlistin hans Bryce mögnuð og melódísk. Undanfarin ár hefur hann verið að semja fyrir sinfóníuhljómsveitir og einleikara um allan heim, t.d. píanó- og fiðlukonserta, auk þess að semja kvikmyndatónlist og vera ein aðalsprauta hljómsveitarinnar The National.“

Aðspurður um tilurð óperunnar segir Ragnar að Dessner eigi alfarið frumkvæðið að henni. „Hann fékk beiðni um að semja óperu og vildi fá okkur Anne í lið með sér. Svo vildi það bara svo skemmtilega til að þegar verið var að velja söngvarana í óperuna þá verða Kristinn og Álfheiður Erla fyrir valinu einfaldlega vegna þess að þau eru stórkostlegir söngvarar. Það hafði ekkert með Íslandstenginguna að gera.“

„Sagan sjálf er hræðileg“

Óperan, sem sungin er á ensku, byggist á H of H Playbook eftir Carson og er endursköpun hennar á harmleik Evripídesar um Herakles. Í kynningartexta á vef Theater Basel segir að þar sé gríska hetjusagan skoðuð í ljósi samtímans og sjónum beint að stríði, ofbeldi, karlmennsku og feðraveldi. Þar kemur einnig fram að um mikið sjónarspil sé að ræða með sviðsheimi málaðra leikmynda, fornum búningum og vélbyssum.

„Umgjörðin er svolítið í takt við það sem ég hef verið að leika mér með í mínum verkum. Sagan sjálf er mjög hræðileg og er um það þegar Herakles snýr aftur heim, myrðir alla fjölskyldu sína og kemst upp með það. Leikmyndinni má í raun líkja við eitthvað sem sjá má í jólabarnaleikriti og þarna eru máluð leiktjöld og sviðsmyndir með barokkyfirbragði.“

Verkið er sameiginleg pöntun Theater Basel, Los Angeles Philharmonic og Lyric Opera of Chicago en Theater Basel er borgarleikhús Basel í Sviss og eitt stærsta leikhús Evrópu, með blandaða dagskrá sem nær yfir dans, óperu og leiklist og hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir framlag sitt til sviðslista.

Mætti segja að þetta væri með stærstu verkefnum þínum á ferlinum?

„Ég hef unnið dálítið í leikhúsinu samhliða myndlistinni en alltaf á forsendum myndlistarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem ég vinn leikhúsverk með hefðbundnu sniði. Í þessu leikhússamhengi má því segja að þetta sé kannski mesta hlussan til þessa en mér finnst samt mjög mikilvægt að líta aldrei á neitt sem eitthvað stórt. Þá verður það of yfirþyrmandi. Maður hugsar bara um allt eins og um árshátíð í Hagaskóla sé að ræða,“ segir Ragnar.

Axel Hallkell Jóhannesson aðstoðar Ragnar við leikmynd en Helga I. Stefánsson aðstoðar við búningana. Samsett mynd

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅