Matorka gjaldþrota
Fram kemur í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í dag að Héraðsdómur Reykjaness hafi tekið bú félagsins til gjaldþrotaskipta 2. nóvember síðastliðinn. Ljósmynd/Matorka
Landeldisfyrirtækið Matorka ehf. í Grindavík hefur verið úrskurðað gjaldþrota, rúmum tveimur árum eftir að félagið fékk heimild til greiðslustöðvunar vegna rekstrarerfiðleika í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Fram kemur í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í dag að Héraðsdómur Reykjaness hafi tekið bú félagsins til gjaldþrotaskipta 2. nóvember síðastliðinn.
Frestdagur gjaldþrotaskiptanna er 30. október og hafa kröfuhafar tvo mánuði frá birtingu innköllunarinnar til að lýsa kröfum sínum í búið.
Missti 80 tonn af bleikju í jarðskjálftunum
Matorka hefur stundað umfangsmikið landeldi á bleikju við Grindavík en starfsemin varð fyrir miklum áföllum vegna jarðskjálftanna í nóvember 2023.
Um 80 tonn af bleikju töpuðust í skjálftunum, auk þess sem stórir eldistankar skemmdust og truflanir urðu á vatnsflæði í eldinu.
Rýmingar Grindavíkur, ítrekaðar rafmagnstruflanir og brottflutningur starfsfólks höfðu einnig veruleg áhrif á starfsemina. Þá þurfti félagið að flytja fiskvinnslu sína til Hafnarfjarðar.
Í september 2024 fékk Matorka samþykkta greiðslustöðvun á meðan unnið var að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins.
Hluthafar höfðu þá lagt verulegt fjármagn í reksturinn og fyrirtækið átti í viðræðum við lánveitendur og aðra kröfuhafa um lausn á fjárhagsvandanum. Þær tilraunir hafa nú ekki komið í veg fyrir gjaldþrot félagsins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗