Arsenal upp í þriðja sætið
Arsenal vann 2:1-útisigur á Slavia Prague í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í Tékklandi í kvöld.
Arsenal er í þriðja sæti með 10 stig en Slavia Prague er í þriðja neðsta sæti með aðeins eitt stig.
Gestirnir voru með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik og Noni Madueke kom þeim yfir strax á níundu mínútu. Viktor Gyökeres þræddi boltann innfyrir vörn heimamanna þar sem Madueke komst á auðan sjó og afgreiddi boltann milli fóta Nazar Domchak í markinu.
Gyökeres komst svo sjálfur á blað þegar hann skoraði laglegt mark sjö mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks. Hann átti þá skemmtilegt þríhyrningaspil við Mikel Merino áður en hann afgreiddi knöttinn í stöng og inn.
Heimamenn komu mun betur stemmdir út í seinni hálfleikinn og komust í ágætis færi á köflum. Arsenal-liðið slakaði hins vegar fullmikið á klónni og reyndi að eyða sem minnstri orku í leikinn.
David Raya átti stórkostlega markvörslu þegar hann varði skalla frá Oskar Kubiak á 83. mínútu og svo virtist sem Arsenal ætlaði að takast að halda markinu hreinu.
Wiktor Nowak kom boltanum í netið á 90. mínútu og hélt vonum heimamanna á lífi en Arsenal náði að lokum að sigla sigrinum heim.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
