Brooklyn Beckham í aukahlutverki hjá eiginkonunni
Brooklyn Beckham birti þessa mynd á Instagram en eyddi henni síðar í kjölfar fjölda neikvæðra athugasemda. Skjáskot/Instagram
Brooklyn Beckham, sonur Davids og Victoriu Beckham, hefur orðið fyrir háði á samfélagsmiðlum eftir að myndir frá hrekkjavökupartíi birtust á Instagram.
Athygli vakti að eiginkona hans, leikkonan Nicola Peltz, var í stíl við besta vin sinn, Damian Hurley, á meðan Brooklyn skar sig úr hópnum.
Brooklyn, 27 ára, mætti í búningi ofurhetjunnar Superman á meðan Nicola, 31 árs, brá sér í hlutverk Catwoman. Damian, sem er sonur leikkonunnar Elizabeth Hurley, klæddist svörtum leðurfatnaði í svipuðum stíl og Nicola.
Á myndunum stilltu Nicola og Damian sér upp saman á meðan Brooklyn stóð við hlið þeirra. Myndirnar vöktu töluverða athygli og létu netverjar ýmislegt flakka um stöðu Brooklyns í hópnum.
„Greyið, hann virðist alveg út undan,“ skrifaði einn, á meðan annar sagði Brooklyn virðast algjörlega utanveltu.
Brooklyn eyddi síðar myndunum af Instagram.
Segir Brooklyn virðast út undan
Sérfræðingur í líkamstjáningu, Judi James, rýndi í myndirnar og sagði þær gefa til kynna ákveðið ójafnvægi í samskiptum hjónanna.
Að hennar mati virtist Brooklyn leggja sig fram um að sýna eiginkonu sinni ástúð og athygli á meðan hún einbeitti sér að myndavélinni. Hún benti jafnframt á að Nicola og Damian hefðu stillt sér upp með svipuðum hætti og þannig látið Brooklyn virðast út undan.
James vakti einnig athygli á búningavali þremenninganna. Hún benti á að þekkt væri að hjón klæddust gjarnan búningum sem pössuðu saman á hrekkjavöku, en í þetta sinn hefði Nicola kosið að vera í stíl við Damian frekar en Brooklyn.
Tók upp hanskann fyrir eiginkonu sína
Uppátækið kemur skömmu eftir að Brooklyn og Nicola fögnuðu sjö ára sambandsafmæli sínu með ástarjátningum á samfélagsmiðlum.
Brooklyn birti meðal annars mynd af eiginkonu sinni og svaraði gagnrýni fylgjenda sinna af ákveðni.
„Já, ég er alveg heillaður af konunni minni. Látið athugasemdirnar dynja, mér er alveg sama. Hún er fullkomin,“ skrifaði hann.
Hjónin gengu í hjónaband í apríl árið 2022 og endurnýjuðu hjúskaparheit sín í ágúst á síðasta ári.
Eins og mbl.is hefur áður greint frá hafa samskipti Brooklyns við foreldra hans, David og Victoriu Beckham, verið afar stirð um nokkurt skeið.
Í janúar greindi Brooklyn opinberlega frá því að hann hefði slitið tengslum við fjölskyldu sína og sakaði foreldra sína meðal annars um að hafa reynt að spilla sambandi hans og Nicolu. Hann tók jafnframt fram að hann hefði ekki í hyggju að sættast við fjölskylduna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/94/1689430.jpg)