Fagnaðarlæti þegar Talarico tók Texas
Allt ætlaði um koll að keyra í Austin í Texas-ríki Bandaríkjanna þegar ljóst var að demókratinn James Talarico hefði betur gegn Ken Paxton, dómsmálaráðherra ríkisins, sem naut stuðnings Donalds Trump Bandaríkjaforseta og tækniauðjöfursins Elons Musk.
Sigurinn markar tímamót í bandarískum stjórnmálum en Talarico er fyrsti demókratinn til að vinna kosningar um embætti á vettvangi alls ríkisins í Texas frá árinu 1994. Texas hefur um áratugaskeið verið eitt helsta vígi Repúblikanaflokksins.
Úrslitin eru mikið áfall fyrir Trump sem studdi Paxton dyggilega og heimsótti Texas fjórum sinnum síðasta mánuðinn fyrir kosningar.
„Við sigruðum Golíat“
Talarico, sem er 37 ára fyrrverandi kennari og guðfræðinemi, hefur vakið athygli fyrir kosningabaráttu sína þar sem hann hefur blandað saman kristinni trú, efnahagsmálum og harðri gagnrýni á auðmenn.
„Við sigruðum Golíat,“ sagði hann á sigurfundi í Austin, höfuðborg Texas.
Hann sagði kosningabaráttuna hafa verið háða gegn valdamiklum andstæðingum, þar á meðal ríkasta manni heims, valdamesta manni heims og stjórnmálaelítunni í Washington.
Elon Musk, ríkasti maður heims, var meðal helstu stuðningsmanna Paxton og varði samkvæmt opinberum gögnum meira en 200 milljónum Bandaríkjadala til stuðnings framboði hans.
Gæti breytt pólitíska landslaginu
Talarico höfðaði meðal annars til ungra kjósenda og þeirra sem höfðu áður stutt Repúblikana en voru orðnir ósáttir við stefnu flokksins.
Hækkandi framfærslukostnaður, Íransstríðið og áhrif ört vaxandi fjölda gagnavera fyrir gervigreind voru meðal þeirra mála sem settu svip sinn á kosningabaráttuna.
Talarico hefur setið á ríkisþingi Texas frá árinu 2018 og byggt upp fylgi með málflutningi þar sem hann tengir saman kristin gildi og gagnrýni á efnahagslegt ójafnræði.
Sigur hans gæti haft víðtæk áhrif á bandarísk stjórnmál. Texas er annað fjölmennasta ríki Bandaríkjanna og hefur 40 kjörmenn í forsetakosningum. Verði ríkið að raunverulegu barátturíki demókrata og repúblikana gæti það gjörbreytt pólitísku landslagi í Bandaríkjunum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
