Munar tæpum 100 atkvæðum í Mississippi
Demókratinn Scott Colom og repúblikaninn Cindy Hyde-Smith heyja hnífjafna baráttu um sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir Mississippi-ríki. Frambjóðandi á vegum Demókrataflokksins í ríkinu hefur ekki náð kjöri í öldungadeildinni í meira en 40 ár.
Þegar 96% voru talin í morgun var Colom með 65 atkvæða forskot, en enn á eftir að telja um 50.000 atkvæðaseðla.
Hyde-Smith gegnir nú embætti öldungadeildarþingmans ríkisins, en hún er fyrsta konan sem situr á Bandaríkjaþingi fyrir Mississippi. Hún var fyrst kjörin árið 2018 og nýtur stuðnings Donalds Trump forseta sem sigraði kosningar í ríkinu með meira en 22 prósentustiga mun árið 2024.
Ef Colom sigrar verður hann fyrsti svarti öldungadeildarþingmaðurinn sem kjörinn er í Mississippi síðan 1875.
Áður en kosningabaráttan fyrir þingkosningarnar fór af stað bjuggust fáir við að demókratar ættu raunhæfan möguleika á að ná öldungadeildarsæti í Mississippi en flokkurinn hefur veitt auknu fjármagni í baráttuna í ríkinu undanfarnar vikur, þar sem hann sá óvænt tækifæri til að ná sætinu.
Hafði forystu framan af
Hyde-Smith hafði forystu þegar um 30% atkvæða höfðu verið talin, en eftir því sem fleiri atkvæðaseðlar voru taldir náði Colom naumu forskoti á andstæðing sinn.
Í Mississippi er ekki sjálfkrafa endurtalið þegar mjótt er á munum og frambjóðendur geta ekki heldur farið fram á endurtalningu.
Í ríkinu eru utankjörfundaratkvæði sem send eru í pósti einnig talin ef þau eru póstlögð í síðasta lagi á kjördag og berast innan fimm virkra daga þar á eftir.
Það þýðir að úrslit liggja að öllum líkindum ekki fyrir fyrr en í fyrsta lagi 10. nóvember, að sögn Julie Wronski, dósents í stjórnmálafræði við Háskólann í Mississippi. í samtali við BBC.
„Vegna þess hve mjótt er á munum milli frambjóðendanna tveggja þurfum við í raun að bíða þar til hvert einasta atkvæði sem berst, með hvaða hætti sem er, hefur verið talið,“ sagði Wronski.
Metnaðarlaus barátta
Wronski sagði að Hyde-Smith, sem var skipuð í embættið árið 2018, hefði að mestu háð daufa kosningabaráttu og treyst á að traustur íhaldssamur kjósendahópur ríkisins skilaði sínu.
„Það var mjög áberandi hve sjaldan hún kom fram opinberlega,“ sagði Wronski.
Trump tók þátt í kosningabaráttunni með Hyde-Smith í síðasta mánuði og sagðist vera þar „af því að Cindy stendur sig frábærlega, en ég þarf bara að vera viss. Ég get ekki tekið neina áhættu“.
Tapið stórt árið 2020
Colom sagði við Washington Post í október að demókrötum hefði yfirleitt ekki gengið vel í Mississippi vegna þess að stórsigrar repúblikana undanfarin ár hefðu orðið til þess að þeir beindu fjármunum sínum annað.
Árið 2020 fylktu demókratar í fylkinu sér að baki Mike Espy, fyrrverandi landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna, sem þeir töldu hafa meðbyr, en hann tapaði fyrir Hyde-Smith með miklum mun.
Demókratar á landsvísu eru „vanir því að láta sig Mississippi engu varða“, sagði Colom. „Að mínu mati getur flokkur ekki sagst bera hag vinnandi fólks fyrir brjósti ef honum stendur á sama um vinnandi fólk í dreifbýli Mississippi sem á í erfiðleikum.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
