„Hefðu mátt senda aðeins meira á mig“

Bjarki Már Elísson með eitt af sex mörkum sínum úr jafn mörgum skotum í fyrri hálfleik. mbl.isEyþór Arnason

„Þetta snérist um að spila sama leik út í gegn og halda standard,“ sagði hinn þaulreyndi landsliðsmaður í handbolta, Bjarki Már Elísson, eftir stórsigur Íslands á Úkraínu í fyrstu umferð undankeppni EM 2028 í Laugardalshöll í kvöld. Bjarki Már lék fyrri hálfleikinn í kvöld og skoraði hann 6 mörk úr jafnmörgum skotum.

„Þetta er bara munurinn á liðunum“

Bjarki hafði þetta að segja um niðurstöðu leiksins í kvöld.

„Það er aldrei góð tilfinning að spila svona leiki af hálfum hraða og við ákváðum að gera þetta af fullri alvöru og af fullum krafti í kvöld. Við erum kannski pínulítið fórnarlömb eigin velgengni með það að þetta er bara munurinn á liðunum. Við sinntum okkar vel í kvöld og þá fer þetta svona.“

Bjarki Már skorar eitt af mörkum sínum í kvöld.

Bjarki Már skorar eitt af mörkum sínum í kvöld. mbl.is/Eythor Arnason

Innkoma óreyndari leikmanna sýnir að breiddin í liðinu er að aukast

Þegar líða tók á leikinn setti Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska liðsins reynsluminni leikmenn inn á og það breytti engu um framgang leiksins. Um þá staðreynd sagði Bjarki Már.

„Það er geggjað og sýnir að það er komin meiri breidd í liðið okkar. Það eru margir að koma inn og vilja sýna sig. Þannig á þetta bara að vera í landsliðinu. Þegar við byrjum að rótera þá hefur standardinn verið svolítið að missa damp en það gerðist ekki í kvöld og það er frábært. Það var margt jákvætt í þessum leik.“

Bjarki Már Elísson skorar sitt fyrsta mark í leiknum í kvöld. mbl.is/Eyþór Arnason

Verður erfitt að koma sér niður á jörðina fyrir leikinn gegn Eistlandi og ná góðri frammistöðu á móti þeim á sunnudag?

„Nei, þetta er líka bara liður í undirbúningi fyrir stórmótið í janúar. Við viljum hittast eftir þennan glugga með góða tilfinningu og það verður ekkert erfitt fyrir okkur að mótivera okkur fyrir leikinn gegn Eistlandi. Snorri er líka mjög góður í því og mun sjá til þess að kveikja í mönnum. Honum finnst ekki gaman að fara í svona leiki af hálfum hraða og því hef ég engar áhyggjur af því að svo verði.“

Bjarki Már sló á létta strengi

Það er erfitt að finna nokkurn neikvæðan punkt í leik liðsins í kvöld enda lék liðið á als oddi. Þegar Bjarki Már var spurður að því hvort hann gæti bent á eitthvað sem hefði mátt fara betur í kvöld svaraði hann í léttu gríni og hlæjandi:

„Já, þeir hefðu mátt senda aðeins meira á mig í fyrri hálfleik,“ sagði hann hlæjandi og hélt síðan áfram:

„Mér leið eins og ég hefði getað skorað 10 mörk á fyrsta korterinu. En að öllu gríni slepptu þá er auðvitað alltaf eitthvað sem má gera betur en þannig er líka bara handboltinn. Heilt yfir var þetta bara flott.“

Þú spilar fyrri hálfleikinn og ert síðan hvíldur allan seinni hálfleikinn. Fer það ekkert í taugarnar á þér að vera hvíldur þegar þú ert búinn að skora 6 mörk í fyrri hálfleik og með 100% skotnýtingu?

„Nei, alls ekki. Yfirleitt er þetta svona í undankeppninni að þessu er skipt svona. Ég bjóst alveg við því og við erum með annan frábæran hornamann í þessari stöðu og bara frábært að deila álaginu.“

Hefur ekki áhyggjur af leiknum á móti Eistlandi ef íslenska liðið mætir af fullum krafti

Leikurinn á móti Eistlandi á sunnudag er skyldusigur líkt og leikurinn í kvöld, ekki satt?

„Jú, ég held að það sé ekkert leyndarmál. Við erum búnir að spila við þá held ég þrisvar sinnum á undanförnum árum og unnið þá nokkuð þægilega í öll skiptin. Þannig að já, það er skyldusigur á sunnudag.“

Þeir mæta væntanlega samt með allar varnir á lofti gegn ykkur eftir að hafa séð þessa útför sem þið veittuð Úkraínu í kvöld, ekki satt?

„Já, ég held að það sé bara samt ekki nóg. Ef við mætum með okkar styrk þá verður gæðamunurinn bara það mikill að það mun ekki skipta neinu máli hvernig þeir mæta í leikinn,“ sagði Bjarki Már í samtali við mbl.is.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅