Arnar bölvaði bróður sínum
„Hún er ekki góð,“ svaraði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, í samtali við mbl.is um hvernig andleg heilsa væri í ljósi þess að hann væri stuðningsmaður Manchester United á Englandi.
United hefur gengið afar illa á tímabilinu en vann þó 3:2-heimasigur á Roma í Meistaradeild Evrópu eftir að hafa lent 2:0-undir.
„Ég horfði á leikinn í gær og sendi á bróður minn, sem helvítið er mikill Arsenal-maður og líður vel þessa dagana. Í stöðunni 2:0 sendi ég honum að við værum að fara að vinna þetta.
Ég er búinn að fylgjast með liðinu frá því að ég var tíu ára gamall og það er alveg sama hvað hver segir. Svona kvöld á Old Trafford, comeback-kvöldin svokölluðu, jafnast ekkert á við þau í fótboltaheiminum.
Það gerist eitthvað í loftinu og þú finnur það þegar þú ert United-stuðningsmaður. Aðrir finna það ekki,“ sagði Arnar og hélt áfram:
„Sem betur fer náðum við að snúa þessu við í gær en staðan er enn þá nokkuð svört og við erum ekki á þeim stað sem við vildum. Vonandi er þessi sigur í gær smá innspýting fyrir það sem koma skal.“
Gera má ráð fyrir að Arnar hafi átt við tvíburabróður sinn Bjarka Gunnlaugsson en þeir eru báðir fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmenn.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗